Úrval - 01.06.1952, Page 26
24
tjRVAL
þrífst ekki í New York. Aftur
á móti þrífst eplatréð í New
York en ekki í Flórída. Talið er
að sumar tegundir deyi út af því
að þær hafa lagað sig um of að
sérstökum skilyrðum, sérhæft
sig úr hófi fram. Hinar þungu
húðbrynjur risaeðlanna (dino-
saurs) og hin viðamiklu horn
sumra elgsdýfategunda eru tal-
in eiga sök á útdauða þessara
tegunda.
Heili og taugakerfi mannsins
er mjög þroskamikið og sérhæft
í samanburði við aðrar tegund-
ir. Það er ekki á færi neins líf-
fræðings að skera úr um það
hvort þessi ofvöxtur og þroski
verði mannkyninu til langlífis
eða aldurtila. Gáfur og greind
í mönnum eins og Newton og
Einstein eru vissulega til bless-
unar, en þær verða bölvaldar í
mönnum eins og Hitler og Mus-
solini.
Ævibraut hvers einstaklings
er einstefnuleið; á henni eru
engar U-beygjur. Fæðing, æska,
manndómur, elli og dauði er ó-
umflýjanleg, líffræðileg atburða-
rás, lífslögmál sem ekki er hægt
að brjóta. En við erum smátt
og smátt að læra að lengja með-
alævi sumra tegunda, þeirra á
meðal mannsins. Hitt vitum við,
að í öllum tegundahópum, allt
frá bakteríum til mannsins, er
óteljandi fjöldi einstaklinga sí-
fellt að deyja, þótt þeir búi við
hin ákjósanlegustu lífsskilyrði.
Það eru að minnsta kosti þrjú
— kannski fleiri — skýrt mörk-
uð skipulagssvið í hinum lifand't
heimi. Hið fyrsta er svið ein-
frumunganna. Þó að þessi ódeili
lífsins séu ekki sýnileg með ber-
um augum, er gerð þeirra og
starfsemi mjög margbrotin. Sér-
hver fruma er gædd öllum mikil-
vægustu eiginleikum æðri lífs-
forma.
Annað er svið fjölfrumung-
anna, þeirra lífvera sem gerðar
eru úr biljónum fruma, skipu-
lögðum frumuhópum í ákveðn-
um tengslum hver við aðra. Þó
að sérhver hópur hafi ákveðnu
hlutverki að gegna og hóparnir
séu að lögun og efnabyggingu
ólíkir hver öðrum, eru þeir allir
komnir af einni frjóvgaðri
frumu. Milli þeirra er (oftast
nær) misfellulaus samvinna, sem
miðar að velferð hinnar æðri
lífsheildar: einstaklingsins.
Þriðja skipulagssvið lífsins er
félagsheildin, samfélagið, teg-
undin. Félagsheildirnar eru
tvennskonar: félagsheildir ein-
frumunga eins og t. d. baktería,
og félagsheildir fjölfrumunga
eins og t. d. býflugna, maura og
manna.
Líffræðingar benda á mikil-
vægt atriði í sambandi við þessa
þrískiptingu í lífheiminum: fé-
lagsheildirnar eru langlífari en
einstaklingar hennar, og ein-
staklingarnir lifa lengur en deili
þeirra, frumurnar. Ótölulegur
fjöldi fruma og jafnvel heil líf-
færi geta dáið án þess að lífi ein-
staklingsins sé nokkur hætta
búin. Og einstaklingar innan fé-