Úrval - 01.06.1952, Page 78

Úrval - 01.06.1952, Page 78
76 ÚRVAL fylgjast af skilningi með hinni skarplegu rökvísi höfundarins, finnst honum við lestur hennar sem hann gangi á andlegum loft- streng yfir háspekilega gjá, og hann lýkur bókinni með þeirri notalegu vitund, að ekkert skipti í raun og veru neinu máli. Ég á mér enga afsökun fyrir því að hnupla titli svona frægrar bókar, nema þá að hún hæfir sögu minni eins og bezt verður á kosið. Þó að Lisette væri heim- spekingur aðeins í þeim skilningi sem við erum öll heimspekingar: að hún beitti hugsun sinni í glím- unni við vandamál lífsins, þá var veruleikaskyn hennar svo mátt- ugt og sýndarhneigð hennar svo rík, að segja mátti með nokkr- um rétti að henni hefði tekizt sú samrýming hins ósamrýman- lega, sem heimspekingar hafa öldum saman keppt að. Lisette var frönsk, og nokkrar stundir úr vinnudegi hennar fóru í að klæðast og af klæðast í einni dýr- ustu tízkuverzlun Parísar. Það var ánægjulegt starf fyrir unga stúlku sem vissi fullvel, að hún hafði fallegan líkama. Hún sýndi sem sagt tízkukjóla með því að klæðast þeim. Hún var nógu há til þess að geta borið kjól með slóða af fyrirmennsku, og hún var svo grönn um mjaðmir, að í sportfötum var sem hún bæri angan af heiðalyngi að vitum manns. Náttföt bar hún af virðuleik vegna þess hve háfætt hún var og jafnvel hin einföld- ustu sundföt urðu töfrandi um- búðir um grannt mittið og lítil, þrýstin brjóstin. Hún gat klæðzt öllu. Feitar konur, stórar kon- ur, stuttvaxnar, beinaberar, mittislausar, gamlar og óásjá- legar konur — allar sátu þær í notalegum hægindastólum og dáðust að fötunum sem Lisette klæddist og keyptu þau af því að þau fóru henni svo vel. Hún hafði stór brún augu, stóran rauðan munn og bjart en örlít- ið freknótt hörund. Það var erfitt fyrir hana að tjá þann kulda og það kæruleysi í öllu lát- bragði, sem virðist nauðsynlegt hverri tízkumey þegar hún líður inn á sviðið hægum skrefum, snýr sér hægt í hring og hverf- ur á brott með fyrirlitningar- svip sem engu líkist meira en svip úlfaldans. Það leyndist grunur um glettni í stórum, brún- um augunum og rauðar varirnar virtust skjálfa eins og þær væru reiðubúnar að tendra bros við minnstu uppörvun. Það var þetta blik, sem dró að sér at- hygli Monsieur Raymond Le Sueur. Hann sat í eftirlíkingu af Lúð- víks XVI stól við hlið konu sinn- ar sem hafði fengið hann til að koma með sér að horfa á einka- sýningu á vortízkunni. Þetta bar glöggt vitni greiðvikni Monsieur Le Sueurs, því að hann var mað- ur mjög störfum hlaðinn, og hef ði mátt ætla að hann hefði mikii- vægari málum að sinna en sitja í eina klukkustund og horfa á tylft ungra fegurðardísa sýna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.