Úrval - 01.06.1952, Qupperneq 94

Úrval - 01.06.1952, Qupperneq 94
92 ÚRVAL ann. Það er eins gott að þau heyri hann strax.“ „Hann hefur rétt fyrir sér,“ sagði hún og gat ekki haldið sér lengur í skef jum. „Þú ert drukk- inn. Farið þið nú. Farið þið.“ „Jæja, svo að þú skilur þýzku? Allt í lagi, ég skal fara. En fyrst verður þú að kyssa mig.“ Hún hörfaði undan til að forð- ast hann, en hann greip um ann- an úlnlið hennar. „Pabbi,“ hrópaði hún. „Pabbí.“ Bóndinn réðst gegn Þjóðverj- anum. Hann sleppti henni og sló bóndann í andlitið af öllum kröftum. Hann hneig niður á gólfið. Svo tók hann stúlkuna í fangið, áður en hún fékk tóm til að flýja. Hún rak honum löðr- ung . . . Hann hló kuldahlátur. „Hegðar þú þér svona, þegar þýzkur hermaður ætlar að kyssa þig? Þú skalt fá þetta borgað.“ Hann hélt handleggium henn- ar föstum og var að draga hana út um dyrnar, þegar móðirin réðst að honum, þreif í föt hans og reyndi að toga hann til baka. Hann hélt stúlkunni fast að sér með annarri hendinni og stjak- aði konunni frá með hinni, svo að hún skjögraði aftur upp að veggnum. „Hans! Hans!“ hrópaði Willi. „Haltu kjafti.“ Hann lagði lófann yfir munn stúlkunnar, til þess að kæfa í henni ópin, og bar hana út úr herberginu. Þannig vildi þetta til, og maður varð að játa, að hún gat sjálfri sér um kennt. Hún hefði ekki átt að gefa hon- um kinnhestinn. Ef hún hefði kysst hann, eins og hann bað um, myndi hann hafa farið. Hann skotraði augunum til bóndans, sem enn lá á gólfinu, og gat varla varizt hlátri, því að hann var svo skringilegur í framan. Það var bros í augum hans, þegar hann leit á konuna, sem hímdi upp við vegginn. Var hún hrædd um, að röðin kæmi næst að henni? Það var ekki líklegt. Hann minntist fransks máltækis. „C’es le premier pas qui coúte. Það er engin ástæða til að gráta, gamla kona. Þetta hlaut að ske fyrr eða seinna.“ Hann stakk hendinni í bakvasann og dró upp peningaveskið sitt. „Sjáðu til, hérna eru hundrað frankar svo að ungfrúin geti keypt sér nýj- an kjól. Það er ekki mikið eftir af þeim gamla.“ Hann lagði seð- ilinn á borðið og setti á sig hjálminn. „Við skulum fara.“ Þeir skelltu hurðinni á eftir sér og stigu á mótorh jólið. Kon- an fór inn í dagstofuna. Dóttir hennar lá á legubekknum. Hún lá eins og hann hafði skilið við hana og grét sáran. * Þrem mánuðum seinna var Hans aftur staddur í Soissons. Hann hafði verið í París með hin- um sigursæla her og hafði ekið á mótorhjóli sínu gegnum Sigur- bogann. Hann hafði tekið þátt í sókninni, fyrst til Tours og síð-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.