Úrval - 01.06.1952, Page 95

Úrval - 01.06.1952, Page 95
ÓSIGRANDl 93 an til Bordeaux. Hann hafði lít- ið orðið var við bardaga. Einu frönsku hermennirnir, sem hann sá, voru herfangar. Eftir að vopnahlé komst á, var hann mán- aðartíma í París. Hann sendi fjölskyldu sinni í Bayern póst- kort og keypti gjafir handa henni. Vegna þess að Willi þekkti hvern krók og kima í borginni, hafði hann orðið eftir, en Hans var sendur til Soissons með herdeild sinni, sem átti að sameinast setuliðinu þar. Það var snotur borg og hann undi sér vel. Nóg að borða og kampa- vínsflaskan kostaði ekki nema tæpt mark í þýzkum gjaldeyri. Þegar hann fékk skipun um að fara þangað, kom honum í hug, að gaman væri að heilsa upp á stúlkuna, sem hann haf ði komizt yfir. Hann ætlaði að gefa henni silkisokka til merkis um að hann væri sáttur við hana. Dag nokk- urn, þegar hann hafði ekkert við að vera, stakk hann silki- sokkunum í vasann og settist á mótorhjólið. Þetta var á yndis- fögrum haustdegi, sást varla ský á himni, og leið hans lá um fagurt hérað. Veðrið hafði verið svo gott undanfarið, að jafnvel espitrén báru engin merki þess að sumri væri að halla, og þó var komið fram í september. Hann villtist einu sinni á leið- inni, og það tafði hann, en þrátt fyrir það var hann kominn á áfangastað eftri tæpan hálftíma. Hundur gelti að honum, þegar hann gekk heim að bænum. Hann barði ekki að dyrum, held- ur sneri hurðarhúninum og gekk inn. Stúlkan sat við borðið og var að afhýða kartöflur. Hún stökk á fætur, þegar hún sá hinn einkennisbúna mann. „Hvað viljið þér?“ Þá þekkti hún hann. Hún hörfaði upp að veggnum og kreppti höndina um hnífinn. „Það ert þú. Sochon.“ „Vertu ekki svona æst. Ég ætla ekki að gera þér neitt. Sjáðu, ég kom með silkisokka handa þér.“ „Burt með þig og alla þína silkisokka.“ „Vertu ekki að þessum kjána- skap. Slepptu hnífnum. Þú þarft ekki að vera hrædd við mig.“ „Ég er ekki hrædd við þig.“ Hún lét hnífinn detta á gólf- ið. Hann tók af sér hjálminn og settist. Hann teygði fram annan fótinn og ýtti hnífnum til sín. „Á ég að afhýða nokkrar kart- öflur fyrir þig?“ Hún svaraði ekki. Hann beygði sig eftir hnífnum, tók kartöflu úr skál- inni og fór að afhýða hana. Stúlkan var hörkuleg á svipinn og augnaráðið hatursfullt. Hún hallaðist upp að veggnum og horfði á hann. Hann brosti til hennar. „Hvers vegna ertu svona reið á svipinn? Þú veizt, að ég gerði þér ekki mikið mein. Ég var æstur, við vorum það allir, það hafði verið talað um hinn ósigrandi franska her og Maginotlínuna . . .“ hann lauk setningunni með lágum, hlakk-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.