Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2010, Blaðsíða 84
JACQUES DERRIDA
bæði eru tvímælalaust eigin. Því eiginnafn Guðs greinist þegar nægilega
niður í málinu, til að merkja einnig, ruglingslega, „ruglingur“. Og stríð-
ið sem hann lýsir yfir hefur upphaflega geisað innan nafns hans: það er
skipt, klofið, tvírætt, margrætt: Guð afbyggir. Hann-sig. ,/lnd he war,“ má
lesa í Finnegans Wake, og við gætum fylgt allri þessari sögu með tilliti til
Shem og Shaun. Þetta „he war“ kemur, á þessum stað, ekki eingöngu á
óteljandi hljóðrænum og merkingarlegum tengslum, bæði í sínu beina
samhengi ogí þessari babelsku bók í heild sinni, það tjáir rír/átyfírlýsingu
(á ensku) þess sem segir: „Eg er sá sem er“ og sem þannig var (war), mun
hafa verið óþýðanlegt í sjálfri virkni sinni, að minnsta kosti íþeirri staðreynd
að það segist á fleiri en einu máli í einu, í það minnsta á ensku og þýsku.
Þótt jafnvel óendanlega vönduð þýðing gerði hinum merkingarlega
grunni fýllstu skil, væri hún þýðing yfír á eitt tungumál og missti marg-
breytileikann sem felst í he war. Við skulum geyma óskiptari lestur á
þessu he war til betri tíma2 en gefum gaum að einni af þeim skorðum sem
kenningum um þýðingar eru settar: Þær íjalla of oft um tilfærslur frá
einni tungu á aðra og taka ekki nægilega mið af þeim möguleika tungu-
málanna að vera jieiri en tvö viðriðin sama texta. Hvernig á að þýða texta
sem skrifaður er á mörgum tungum í einu? Hvernig komast fjöldaáhrif-
in „til skila“? Og ef þýtt er á fleiri tungur í einu, kallast það að þýða?
Babel, nú á dögum viðtekið sem eiginnafn. Vissulega, en við hvað á
þetta eiginnafn, og við hvern? Stundum við frásagnartexta sem segir
sögu (symbólíska, allegóríska eða mýtu, skiptir litlu í bili), sögu þar sem
eiginnafnið, sem þá er ekki lengur titill frásagnarinnar, nefnir turn eða
borg, en turn eða borg sem hljóta nafn sitt af atburði þegar YHWH
„lýsir yfír nafni sínu“. En þetta eiginnafn sem nefnir þegar a.m.k. þrisvar
og þrennt ólíkt, gegnir sem sérnafn einnig, og um það snýst allt, hlut-
verki almenns nafnorðs. Þessi saga greinir, auk annars, frá uppruna
tungumálaruglingsins, margbreytni þjóðtungnanna, hinni nauðsynlegu
og ómögulegu kvöð að þýða, um nauðsyn þess sem ómöguleika. En
venjulega er lítið skeytt um þá staðreynd að það er einmitt í þýðingu sem
þessi frásögn er oftast lesin. Og í þessari þýðingu er hlutskipti sérnafns-
ins óvenjulegt að því leyti að það er ekki þýtt eins og það kemur íyrir sem
sérnafn. En nú er sérnafn sem slíkt reyndar alltaf óþýðanlegt, og út frá
þeirri staðreynd má segja að það tilheyri strangt tekið ekki málinu eða
2 Sjá Ulysse gramophone, Deux rnots pour Joyce, París: Galilée, 1986.
82