Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2010, Blaðsíða 248
KRISTIN LOFTSDOTTIR
þessa tvo þjóðernishópa, Khoikhoi og Zúlu.37 Slík tvíþætt staðalmynd af
framandi fólki hefur verið mjög lífseig38 og hefur Michael Taussig bent á
að hún virðist að einhverju leyti ráðast af tengslum þjóðernishópa við
Evrópubúa.39 Mary Louise Pratt nefnir að þegar Evrópubúar komu til
Suður-Afríku tileinkuðu þeir sér staðalmyndir Khoikhoi fólksins sem leit
á San40 fólkið sem villt og hættulegt. En í lok 18. aldar þegar landnem-
unum stafaði ekki lengur ógn af San (vegna fjöldamorða og þrælahalds)
var farið að fjalla um þá sem ósnerta og saklausa, eins og þeir hefðu aldrei
átt í samskiptum við Evrópubúa.41 Z. S. Strother hefur bent á svipað at-
riði í sambandi við Khoikhoi fólkið, en eftir 1720 var farið að fjalla um
Khoikhoi í auknum mæli sem lata og óvirka enda varð hugtakið Hottent-
otti næstum samheiti yfir letingja á ensku eins og sjá má í orðabók frá
1971.42 Rannsóknir Pratt og Strother draga fram hvernig ímyndir ákveð-
inna hópa hafa verið breytilegar í gegnum söguna.
Staðalmyndir svokallaðra „villimanna“ eru því margflóknar: lögð var
áhersla á grimmd ákveðinna hópa, eins og Zúlu og íbúa konungsríkisins
Dahomey, á meðan aðrir, eins og Khoikhoi, voru álitnir barnalegir og
saklausir.43 A seinni hluta 19. aldar var hægt, á „vísindalegan“ hátt, að
halda fram eðlisbundnum hugmyndum um einstaklinga og samfélög
með tilvísun í kynþátta- og þróunarhyggju.
■' ■ Bernth Lindfors, „Hottentot, Bushman, Kaffir: The Making of Racist Stereotypes
in the 19th-century Britain," Encounter Images in the Meetings of Africa and Europe,
ritstj. Mai Palmberg, Uppsalir: The Nordic Africa Institute, 2001, bls. 54-75.
38 Sú fyrri er í anda hugmyndarinnar um hinn göfuga villimann, sú sfðari meira í ætt
við sýn Thomasar Hobbes (1588-1670) á líf frummanna sem „villimannlegt og
stutt“: Thoinas Hobbes, Lcvithan: Parts I and II, Indianapolis: Bobbs-Merrill Educ-
ational Publishing, 1958, bls. 107.
39 Michael Taussig, Mimesis and Alterity: A Panicular History ofthc Senses, New York:
Routledge, 1993.
40 Hugtakið !Kung er einnig oft notað yfir San fólkið.
41 Mary Louise Pratt, „Fieldwork in Comrnon Places,“ Writing Culture: The Poetics and
Politics of Ethnography, ritstj. James Clifford og George Marcus, Berkeley: Univer-
sity of California Press, 1986, bls. 27-50, 46.
42 Z. S. Strother, „Display of the Body Hottintot,“ Africans on Stage: Studies in Ethno-
logical Show Business, ritstj. B. Lindfors, Bloomington: Indiana University Press,
1999, bls. 1-61.
43 Kynþáttaflokkanir voru þó fjölbreyttar og þjóðernishópar staðsettir á mismunandi
hátt innan þeirra.
246