Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2010, Blaðsíða 352
JAMES CLIFFORD
tvíheimar eru settir í sögulegt samhengi á þennan hátt er ekki hægt að
gera þá að allsherjarlíkingu eða „mynd“ fyrir nútímalega, flókna eða af-
stöðubundna sjálfsmynd sem skorin er þvers og kruss og færð úr stað kyn-
þáttar, kyns, kyngervis, stéttar og menningar.
Það kort eða sú ákveðna saga sem Gilroy miðar við er vissulega opið
fyrir lagfæringum og gagnrýni - sökum þess að hafa hallað „svarta Bret-
landi“ í áttina að Atlantshafsveröld þar sem afrísk-karabískur uppruni er
miðlægur, sökum þess að hafa einblínt á venjur við ferðalög og menning-
arframleiðslu sem hafa ekki verið opnar konum, með mikilvægum undan-
tekningum þó, sökum þess að hafa ekki gefið nægan gaum flóknu kynferði
í uppbyggingu tvíheimavitundar. Þar að auki endurspeglar tvíheimainn-
grip Gilroys í sögu svartra ákveðnar vandasamar aðstæður: það sem hann
hefur kallað „sérkenni hinna svörtu Englendinga'1.63 The Black Atlantic
affniðjar, að vissu leyti, afrísk-ameríska sögu sem hefur stundum verið sú
saga sem lögð hefur verið til grundvallar. Að vissu leyti. Hin sérstaka
reynsla af plantekruþrælahaldi, frelsi, hreyfingu milli suðurs og norðurs,
þéttbýlismyndun og samskiptum kynþátta/þjóðarbrota, hefúr svæðis-
bundinn og raunar „þjóðlegan“ fókus sem ekki er hægt að skipa undir
kort/sögu af ferðum yfír Atlantshafið. Þrátt fyrir að rætur og farvegir
afrísk-arnertskrar menningar eigi augljóslega leið um Karíbahafið hefur
sagan mótað þær í sérstök baráttumynstur og gefið þeim upprunalegan
svip. Þær eru ekki þverþjóðlegar eða tvíheima á sama hátt eða að jafn-
miklu leyti. Mikilvægar samanburðarspurningar vakna í kringum ólíkar
sögur um ferðalög og dvöl - sem byggja sérstöðu sína á landsvæði (til
dæmis „suðrið“ sem sá punktur sem tvíheimaþráin beinist að), vegna (ný)-
nýlendusögu, vegna þjóðarlegrar samtvinnunar, vegna stéttar og vegna
kyns. Einnig er mikilvægt að taka fram að hin svarta Suður-Ameríka, hin
spænsk/svarta menningarblöndun Karíbahafseyjanna og Rómönsku Am-
eríku er, á þessari stundu, ekki með í sýn Gilroys á tvíheimana. Hann
skrifar út frá stað í Norður-Atlantshafi/Evrópu.64
63 Paul Gilroy, Small Acts: Tboughts on the Politics ofBlack Cultures, London: Serpent’s
Tail, 1993, bls. 42-62.
64 The Black Atlantic er markvisst inngrip í afrísk-ameríska hcfð hvað varðar sögu
hugsunar og ntenningar. Samkvæmt kanónunni hefur þessi hefð staðið fýrir afrísk-
worJar-ameríska sögu, þar með talið þau svæði Karíbahafsins sem tengjast beint
enskumælandi Bandaríkjunum. Nýjar suður-amerískar/mexíkó-amerískar túlkanir
á hinum flóknu landamærasvæðum álfanna tveggja setja spurningarmerki við of
línulegar tvíheimafrásagnir. Sjá til dæmis túlkun José David Saldívars á Ntozake
35°