Læknaneminn - 01.03.1972, Blaðsíða 73
LÆKNANEMINN
65
Hafsteinn Skúlason, II. hl., tók fyrir
pathologíu lungnanna og- skipti m. a.
tumorum niður I benigna og maligna.
Hann notaði glœrur (það hafði Sigurð-
ur líka gert).
Haraldur Briem, III. hluta, talaði um
meðferð, greiningu og horfur. Hann
ræddi um samband miili reykinga og
ca. pulm., aldursdreifingu og kynskipt-
ingu.
Revisor, Gunnar Gunnlaugsson, lækn-
ir, var hrifinn af íslenzku statistikinni,
sem hann hafði ekki séð áður. Svo
ræddi hann nánar ýmis atriði í erindum
framsögumannanna og jók við sumt,
en þótti þó yfirieitt gott. Hann minntist
á notkun röntgenmynda við greiningu
og brýndi nákvæm vinnubrögð fyrir
mönnum. Svo tók hann fyrir aðgerð að
einhverju leyti..
Seinast voru fjárreiður Læknanemans
teknar til umræðu, og þar talaði Kristó-
fer Þorleifsson. Svo var fundi slitið.
Pundur stjórnar og stúdenta af 3. ári
uppi á lofti íþróttahússins, 20. 12. 1971.
Talað var um, hvort þessi hópur stúd-
enta skyldi marsjera áfram eftir gömlu
reglugerðinni, og það virtust menn vilja
einhuga. Miklar umræður spunnust um
þá erfiðleika, sem sköpuðust, ef tveim-
ur hópum væri kennt eftir mismunandi
reglugerðum. 3. árs menn vildu, að allar
leiðir yrðu kannaðar um það, hvort ekki
fengju þeir kennslu eftir gömlu reglu-
gerðinni. Pundi var slitið, og undir hann
skrifaði Vilhjálmur Rafnsson.
Fundur í F. L. i I. st„ H. I., 10.1. 1972.
Gestur fundarins var Páll Ásgeirsson,
sérfræðingur í barnageðlækningum.
Fundarefni var „Unglingarnir og þjóð-
félagið."
Allmargir sálfræði- og þjóðfélags-
fræðistúdentar höfðu verið boðaðir tii
fundarins.
Páll Ásgeirsson talaði um hugtakið
,, unglingur", m. a. fýsíólógiskt í sam-
bandi við kynþroska, en sagðist ekki
mundu varpa neinum bombum um eitur-
lyf. Hann sagði unglinga háða foreldr-
um og „stóra foreldrinu“ (þ. e. þjóð-
félaginu), sem breytist mjög ört.
Páll ræddi um pólitíska þætti, sem
hafa mjög mikil áhrif á það, hvort
ungt fólk aðlagast þjóðfélaginu. Hann
hélt að asocialitet væri ekki svo vaxandi
hér og ekki væri mikið leitað til hans
vegna þess. Auk þess væri mjög mis-
munandi, hvað væru taldir glæpir og
hvað ekki.
Næst talaði Páll um hass og alkóhól.
Hann taldi fulla ástæðu til að vera á
móti hassi, en áróður í skólum telur
hann neikvæðan, vegna þess, hve efnin
væru enn fjarlæg íslenzkum unglingum.
Varðandi glæpi unglinga sagði Páll,
að hér væri engin meðferð til við þeim,
en hitt væri vist, að mörg vandamál
kæmu fram á kynþroskaskeiði, er hefðu
blundað áður.
Þá ræddi Páll skipulag Geðdeildar
Barnaspítala Hringsins við Dalbraut.
Hann minntist á kenningar Preuds
um myndun persónuleikans og loks á
samband milli kennara, sem oft hefðu
gott lag á þessum börnum. Svo var
fundi siitið, en Reynir Tómas Geirsson
skrifaði fundargerðina.
Fundur í stofu III, 31.1. 1972.
Fundarefni var metaboliskar sýru-
basa- og electrolýtatruflanir.
Frummælendur voru Árni T. Ragn-
arsson, Anna Björg Halldórsdóttir,
Ingimundur Gíslason og Þorsteinn
Blöndal.
Revisor var Páll Ásmundsson.
Guðmundur Þorgeirsson setti fundinn
og bauð gesti velkomna.
Árni talaði fyrstur og fjallaði um al-
menn viðbrögð líkamans gagnvart sýru-
stigsbreytingum en minntist líka á
mælingar og rannsóknir í sambandi við
sýru- og basavæg.
Ingimundur kynnti metabolíska aci-
dosu.
Þorsteinn talaði um metabólíska alkal-
ósu og rakti sögu, rannsóknir og með-
ferð.
Páll Ásmundsson þakkaði fyrirlesur-
unum fyrir góð erindi og talaði svo um
efnið, orsakir og fleira í þeim dúr.
Orðið var gefið laust, og nokkrar
fyrirspurnir komu fram um rannsóknir,
meðferð og fylgikvilla.
Fundi var slitið og Guðfinnur P. Sig-
urfinnsson reit skýrslu um fundinn.
Fundur var haldinn meðal læknanema
í I. st. Háskólans, 14.2 1972.
Fáir sóttu fundinn, en Guðmundur
Þorgeirsson setti hann. Stefán Karlsson
var fundarritari.
Stefán Jónsson, lektor, talaði um klín-
iska fysíólógíu og spjallaði um starf,
sem unnið er í klínískum tilraunastof-
um.