Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1972, Page 103

Læknaneminn - 01.03.1972, Page 103
LÆKNAN E MINN 89 uppgötvast þetta ástand með loft- myndum, er sýna tilfærslu á heila- hólfakerfi. Meðferð með steroid- um og/eða diuretica kemur að litlu haldi, og við þetta verður að eiga kirurgiskt. Raunar hefur sú með- ferð gefið góða raun. Hægfara mynd við blæðingu getur komið með þeim hætti einnig, að lítið gat myndast á æðavegg, og ef blóð- þrýstingur er ekki mjög hár, síast út blóð hægt og jafnt. En í stað þess að eyðileggja stór svæði í heilavef, þrýstist það inn, milli og eftir taugaþráðum og aðskilur þá. Einkenni fara þannig hægt vax- andi, en ef blæðing stendur stutt, þarf venjulega enga sérhæfa með- ferð, og raunar verður lítilli medi- cinskri meðferð við komið. Ef til mjög alvarlegs ástands kemur, verður að íhuga skurðaðgerð. Menn höfðu eitt sinn þá trú, að hægfara heilablóðfall væri aldrei blæðing heldur alltaf stífla. I»ví miður er þetta ekki svo, og 18% hægfara heilablóðfalls eru blæð- ingar (Glynn 1956). Þar sem svo blóðþynning er hin eina afgerandi medicinska meðferð, en yrði þó ekki notuð, þegar um blæðingu væri að ræða, sýnir þetta okkur, hversu mikilvægt er, að greining hins sjúklega þáttar sé örugg og óyggjandi. Við getum einnig af þessu séð, að útlit mænuvökva er ekki eitt nægjanlegt eða með öllu áreiðanlegt. Emboliur eru sjaldnast hægfara heilablóðföll. Þar gerast hlutirnir skyndilega með hámarksafleiðingu samstundis. Hægfara gæti þetta þó orðið með þeim hætti, að thrombus hlæðist út frá stíflunni og næði smám saman að loka fleiri grein- um stofnæðarinnar. Ástæðan til þess, að þetta gerist sjaldan, er sú, að bíóðþynningarmeðferð er beitt, og hindrar liún þetta. Síð- búinn bjúgur gæti auðvitað mynd- azt einsog í seinna dæminu hér að framan. Hægfara heilablóðfall getur gef- ið til kynna, að hálsæð sé að lokast einsog ljóst kemur fram af fyrra dæminu hér á undan. Þrenging eða lokun á hálsæð(um) er svo mikil- væg í sambandi við heilablóðfall, að um þetta efni verður fjallað sérstaklega síðar í þessari grein, og vísa ég til þess, og hef ekki um fleiri orð að sinni. Langalgengasta orsök hægfara heilablóðfalls er æðastífla í mynd thrombosu (alls í 70-75% tilfélla, þegar tekið er saman extra- og intracranial æðaþrengsli og stífl- ur). Blóðmagn til heilasvæðis minnkar smám saman. Þannig er fyrst til staðar blóðskorts (ischae- miskt) ástand, en endar loks sem drep (infarction), ef engum vörn- um verður við komið og ef ekki er nægilegt hliðarstreymi blóðs mögulegt. Það myndast loks thrombus á atheromatusu æða- svæði. Stundum hjálpa til þættir einsog þurrkur og/eða blóðþrýst- ingsfall, en oftar virðast engar meðvirkandi skýringar. Það er fyrst og fremst hér, sem menn velta fyrir sér blóðþynningu á réttu augnabliki. Þetta er hin táknræna mynd hægfara heila- blóðfalls skv. fyrri skilgreiningu í upphafi þessa kafla, en auðvitað getur einnig komið fram síðari myndin, þ.e.a.s. síðbúinn heila- bjúgur, sem meðhöndla verður með steroidum og/eða diuretica, jafnvel með kirurgiskri decom- pression. Svo ráðlítil sem við oftast stönd- um gagnvart algeru heilablóðfalli, þá skapast a.m.k. annað viðhorf, þegar við höfum undir höndum sjúkling, þar sem heilablóðfallið er að gerast. Þær spurningar hljóta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.