Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1972, Page 159

Læknaneminn - 01.03.1972, Page 159
LÆKNANEMINN 137 ing hagnýtist sjúklingunum og þjóðfélaginu til heilla. Þetta get- ur ekki orðið, nema læknar haldi vel vöku sinni varðandi viðhalds- menntun og bregðist ekki þeirri ábyrgð, sem þeir hafa til þess að fræða almenning og stjórnmála- menn um hagnýtingu framfara og þá síbreytilegu starfsaðstöðu, sem læknisþjónustan krefst, til þess að geta veitt fólkinu þá heilsu og heill, sem nútímalæknisþjónusta hefur að bjóða. Margþœtt vandamál Heilbrigðisþjónustan hérlendis er skipulögð af opinberðum aðil- um, og jafnframt er henni stjórn- að af þeim, að nokkru leyti ein- hliða en að sumu leyti í samvinnu við læknasamtökin. Það virðist því í fljótu bragði eigi óeðlilegt, að opinberir aðilar annist gæzlu á gæðum þjónustunnar og hafi gát á ábyrgð lækna. Þess ber þó að gæta, að ábyrgðarþáttur hins opin- bera, sem skipuleggur, stjórnar og fjármagnar læknisþjónustuna, er æði stór fyrir, og gæzlu þess þátt- ar er ekki vel borgið í höndum opinberra aðila eingöngu. Mat á störfum lækna og mistökum er æði erfitt sökum þess, hve starfið er flókið. Sem dæmi má nefna, að stundum koma skaðlegar afleið- ingar læknismeðferðar ekki fram, fyrr en langur tími er liðinn. Auka- verkanir lyfja geta komið fram eftir mánuði, ár og jafnvel ára- tugi, en þá er oft erfitt að greina þær frá ýmsum sjúkdómum, sem af öðrum toga eru spunnir. Lyf ja- meðferð eins hóps sjúklinga getur haft áhrif á afdrif annars hóps, jafnvel á heilsu ókominna kyn- slóða. Sum mistakamál geta að vísu verið skýr og ótvíræð, en í mörgum tilvikum er aðeins á færi lækna að meta málsatvik, enda leita dómstólar til læknaráðs heil- brigðisstjórnar um svör við fag- legum atriðum, þegar þeir hafa til meðferðar mál, sem snerta flókin, fræðileg störf lækna. Það er ekki óeðlilegt, að nokk- urrar tortryggni gæti hjá almenn- ingi, þegar slík nefnd lækna eða læknaráð gefur álit um verk stétt- arinnar, en þess ber að gæta, að læknaráð dæmir ekki í neinum málum, heldur svarar ákveðnum spurningum, sem dómstólar eða ráðuneyti leggja fyrir það. Flokkun mistaka Þegar mistök henda lækni í starfi, reynir á ábyrgð hans. Fyrr á tímum, jafnvel í upphafi þessarar aldar, taldist það til tíð- inda, ef læknisaðgerð tókst vel. Nú er viðhorfið sem betur fer breytt, það þykir eðlilegt, að læknisað- gerðir takist, og fremur frásagna- vert, ef út af ber. Þá er það enn svo, að nýjar lækningaaðferðir, sem vel takast, eru taldar til stór- tíðinda. Ef lækni mistekst í starfi, má oft rekja orsakir til annríkis, þreytu, vanþekkingar, vanrækslu og lélegrar starfsaðstöðu; það síð- asttalda þó eigi þýðingarminnst. Annríki, þreyta í starfi og léleg starfsaðstaða eru atriði, sem lækn- ar og stjórnendur heilbrigðismála bera sameiginlega ábyrgð á. Á Alþjóðaþingi lækna í Osló 1970 var talið, að vanræksla og vanþekking væru þau atriði, sem læknar ættu að bera hvað mesta ábyrgð á, og jafnvel einu atriðin, sem gerðu þá fébótaskyldu. Leiðir, sem stefna að því marki að minnka mistök lækna, eru fyrst og fremst fólgnar í menntun þeirra, þar með talinni stöðugri viðhaldsmenntun, og í öðru lagi skipulagi læknis- þjónustunnar og aðstöðu til starfa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.