Úrval - 01.12.1961, Side 130
138
Ú R V A L
blæbrigði virðast óeðlilega dökk.
Þeir eiga oft afar örðugt með
að greina á milli mismunandi
blæbrigða sama litar.
Sjaldgæfasta tegundin ct nefnd
mónókrómatismi, þessir sjúkling-
ar lifa í heimi, sem einungis er
gerður úr mismunandi blæbrigð-
um af gráu. Engin af þremur
gerðum skyntappanna verkar
eðlilega gagnvart bylgjulengdum
ljóssins, litarskynið vantar alveg.
Þetta ástand er venjulega sam-
fara augnsjúkleika.
Langkunnasta tegundin er
dikrómatismi, þegar litum er
blandað með hjálp tveggja bylgju-
lengda að eins. Útkoman verður
litaruglingur. Til eru nokkur af-
brigði af díkrómatisma.
Prótanópe er rauð-blindur
maður, sem ruglar saman rauðu,
grænu og gráu vegna galla í R-
töppunum. í hans augum er rautt
og grænt, rautt og brúnt, blátt,
og purpuralitt eins.
Deuteranópe er græn-blindur
og ruglar einnig saman rauðu og
grænu, bláu og purpuralitu, rauð-
purpuralitu og gráu, en af ann-
arri orsök: gallinn er í G'-töppun-
um.
Tríanópe er fágætur. Hann
ruglar saman bláu og grænu,
þelckir ekki fjólublátt, sér gult
sem grátt. Gallinn er í F-töpp-
unum.
Tetartanópe er sjaldgæfastur.
Hann sér allt litrofið sem annað-
hvort grænt eða rautt.
í viðbót við þessar ættgengu
tegundir getur litblinda komið
sem afleiðing sýkingar, deyfing-
ar (t.d. af tóbaki eða áfengi) eða
sem rýrnun sjónfæranna að með-
talinni sjóntauginni. En þess
konar litblinda er annars eðlis en
hin meðfædda.
Þar eð hin síðarnefnda er svo
mjög mismunandi, allt frá mild-
ustu tegund til hinnar alvarleg-
ustn, er oft (einkum í börnum)
örðugt að finna hana. í mildum
tilfellum ber stundum ekkert á
litaruglingi, nema sjónarsviðið sé
mjög lítið, illa lýst eða hjúpað
mistri.
Fólk, sem haldið er þessum á-
galla, bætir sér hann auk þess
oft upp óafvitandi. Með þvi að
athuga lögun og mismunandi
birtu nefnir það oft rétta liti
á alkunnum hlutum, þó að það
greini þá ekki rétt. Það getur
ef til vill ekki greint rautt frá
grænu til dæmis, en það mundi
ekki kalla þroskað jarðarber
grænt, — enda þótt því veitist
erfitt að finna rautt ber á grænni
jurt.
Einfaldasta og algengasta próf-
unin er gerð með litaspjöldum,
prentuðum i mismunandi stórum
deplum. Einum eða fleiri tölu-