Úrval - 01.03.1963, Síða 125
r;- ■
SVONA ER LÍFID
„Bæjarstjórnarskrifstofurnar,"
sagði símastúlkan. Svo varð löng
bögn og M sagði kvenrödd eymd-
arlega: „Er þetta raunverulega hjá
bænum?"
„Já, frú,“ svaraði símastúlkan.
„Við hvern óskið þér að taia?“
Aftur varð óþægileg þögn, en
svo sagði kvenröddin afsakandi:
„Engan, hugsa ég. Ég fann bara
númerið á miða í jakkavasa
mannsins míns.“
(Frjáls verzlun).
Gamall bóndi skrifaði póstverzi-
un eftirfarandi bréf:
„Gerið svo vel að senda mér
benzínvél, eins og sýnd er á bls.
787, og ef hún er í lagi, Þá sendi
ég ávísun.“
Póstverzlunin svaraði um hæl:
„Gerið svo vel að senda okkur
ávísun, og ef hún er í lagi, sendum
við vélina.“
(Frjáls verzlun).
Jón Pálmason var eini bóndinn
i þingliði Sjálfstæðisflokksins, sem
eindregið studdi „nýsköpunar-
stjórnina". Um þær mundir orti
Bjarni Ásgeirsson til hans i þing-
veizlu eftirfarandi vísu:
Drekkum austræn, vestræn vín,
vodka og svartadauða
Nú er áfeng ilman þín
Akurliljan rauða.
Það var eitt sinn á Þingi, að
Gísli Jónsson stóð upp og sagðist
ávarpa Efri-deild, ekki fyrir sína
eigin hönd og enn síður fyrir hönd
flokks síns, heldur fyrir hönd skyn-
seminnar. — Þá orti Bjarni Ás-
geirsson þessa vísu:
Þar kom einn sem ófeiminn
ávarpaði hina,
ekki fyrir flokkinn sinn
en fyrir skynsemina.
(Frjáls þjóð).
Kerling ein fyrir norðan var að
gefa karli sínum dauðveikum eitt-
hvert meðal, en hann tók ekki
greiðlega á móti. Gekk svo, þangað
til maður nokkur viðstaddur segir:
„Hættu Þessu manneskja, sérðu
ekki að karlinn er dauður?“
„O, það er þrái líka,“ svaraði
kerling shúðugt. „Láttu mig þekkja
hann Jón minn. Það er bölvaður
þrái líka.“
(Frjáls þjóð).
141