Úrval - 01.03.1963, Blaðsíða 129
A’ý HJÁLPARTÆIll LAMAÐRA ...
145
opna og loka rennilásum, krók,
sem hjálpar hinum fatlaða að ná
hlutum af gólfi og ofan úr hill-
um, baðbursta úr svampgúmi með
sápu innan í.
Árið 1950 fékk stofnun þessi við
New Yorkháskóla styrk frá Löm-
unarfélaginu (National Founda-
tion for Infantile Paralysis), og
styrkinn notuðu menn þessir til
þess að framkvæma markvissar
og margþættar rannsóknir, sem
nefndar voru „Rannsóknir á
tækjum til sjálfshjálpar“. —•
Rannsóknarnefndin sendi bréf til
sjúkrahúsa, þjálfunarmiðstöðva,
lækna og þjálfunarsérfræðinga
og bað þá um að senda nefnd-
inni sýnishorn af slíkum tækjum,
sem notuð væru af þeim með
góðum árangri, eða nána lýsingu
þeirra. Þessi tækjaleit varð til
þess, að út var gefinn verðlisti
árið 1958, sem hlaut nafnið
„Sjálfshjálpartæki til endur-
þjálfunar“ (Self-Help Devices
for Rehabilitation). Liðagigtar-
og gigtarfélagið (Arthritis &
Rheumatism Foundation), kom á
laggirnar „Skrifstofu Sjálfshjálp-
artækja“ (Self-Help Device Off-
ice) við ofangreinda stofnun við
New Yorkháskólann, og gefur
skrifstofa sú út mánaðarrit, er
nefnist' „Device News“ (Tækja-
fréttir), og er það læknum og
þjálfunarsérfræðingum til mikill-
ar hjálpar í starfi þeirra.
Nú er til tæki til hjálpar við
næstum livers kyns fötlun sem
hugsazt getur. Tylftir handtækja
hjálpa sjúklingum, er þjást af
liðagigt eða fengið hafa lömun,
að skrifa og nota rakvél. Hægt
er að festa naglaklippur við borð
og stjórna þeim með böndum,
sem vinna líkt og fótstig. Það
gæti virzt, að það væri ófram-
kvæmanlegt verk fyrir konu, sem
ekki getur beygt bak sitt, að
klæða sig í nylonsokka. En samt
getur hún slíkt með hjálp stál-
ramma, sem festur er á langt prik.
Sokkurinn er vafinn upp, settur
yfir rammann og fótinn, og svo
vefst hann í sundur, þegar prikið
er dregið upp á við.
Fyrir nokkrum árum hauðst
tízkufræðingurinn Helen Colk-
man til þess að standa fyrir til-
raunum til sérstakrar fatafram-
leiðslu við ofangreinda stofnun
við‘ New Yorkháskólann. Árang-
urinn varð svo sá, að framleiðsla
hófst á sérstökum fatnaði fyrir
lamaða og fatlaða, sem hægt er
að sníða og sauma eftir sérstök-
um sniðum, sem kaupa má í
verzlunum eða þá, að hægt er að
breyta venjulegum tilbúnum
fatnaði, þannig að hann korni
hinum lömuðu og fötluðu að be-tra
gagni. Karlmannáföt og kvenkáp-
ur, pils og kjólar og annar fatn-
aður er útbúinn með það fyrir
augum, að komast megi hjá hin-