Norðurljósið - 01.01.1982, Blaðsíða 62
62
NORÐURLJÓSIÐ
nógu mikið til að geta skrifað, vildi hún láta hann vita, að hún
fyrirgæfi honum líka og vonaði, að hann mundi lifa Drottni alla
sína ævi.
Ekkert nema elska Guðs var meiri en sú elska, sem fjölskyld-
an og vinir hennar sýndu á þessum örlagaríku tímamótum. Af
miskunn sinni hefur Guð haldið áfram að lækna Díönu og
hefur kennt okkur marga, fagra námskafla á meðan. Fimm
mánuðum eftir slysið voru þau, Randy og hún, sameinuð í
brúðkaupi með fögrum siðum. Nú eru þau komin aftur í JBU
skólann til að vera þar síðara námsárið saman, eins og þau
höfðu ætlað. Enn á hún mikið eftir til að hafa náð fullri
heilbrigði, en með Randy við hlið sér og með hjálp Guðs mun
það takast.
Afleiðingar alls þessa eru þær, að Gídeons-mönnum eru nú
opnar dyr til þjónustu í fangelsinu og eru velkomnir, hvenær
sem þeir vilja. í sannleika getum við sagt, að þetta slys var
áformað af Guði.
(Þýtt úr The Gideon, mars 1980. S.G.J.)
Afturhvarf
Þetta gerðist haustið 1973 í háskólanum í Wisconsin. Innrás
var gjörð á lóðina umhverfis Hvítavatns-háskólann. Nokkrir
skrýtnir menn komu. Vel búnir voru þeir og í fallegum
yfírfrökkum, - ekki í þessum venjulegu, bláu skólabuxum.
Kassar voru við síður þeirra. Eg tók eftir því, að ókunnu
mennirnir buðu bækur þeim, er gengu framhjá.
Eg var þá nýnemi í skólanum. Eg hugsaði með mér:
Hmm: Gjarnan vildi ég fá eina af þessum ókeypis bókum. Eg
get ekki trúað því, að nokkur sé að gefa nú á þessum dögum.
Hvílíkur hagnaður!
Eg nálgaðist einn manninn, sem þrýsti bók á milli móttöku-
fúsra fingra minna. Lítið gerði ég mér grein fyrir því, að bókin í
bandinu græna - og með gullnum stöfum á - væri vopn í raun
og veru - lifandi og kröftugt og beittara en nokkurt tvíeggjað
sverð.
Eg leit á nýja testamentið. Eg var í raun og veru glöð yfir því