Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 8
8
Porvaldur Thoroddsen
líka vel fyrir hann að kynnast rannsóknaraðferð Johnstrups
á íslandi, því að náttúran er öll önnur í Danmörku eins
og kunnugt er, og það var því eigi nóg fyrir hann að
taka þátt í rannsóknum þar. Ferð þessi mun hafa haft
þau áhrif á Porvald, að hann fór nú eftir þetta að kynna
sjer eldfjallasögu íslands og hugsa meira um jarðfræði
þess en áður.
Porvaldur stundaði nám sitt við háskólann vel, en
þá er hann gat, var hann á bókasöfnum að nota þar
bækur og handrit; einnig notaði hann nokkuð handrit
Bókmentafjelagsins og hann ritaði allmikið. Á árunum
1878 og 1879 ritaði hann á dönsku yfirlit yfir sögu eld-
fjallanna á Islandi, »Oversigt over de islandske Vulkaners
Historie«, sem kom út í Kaupmannahöfn 1882; á háskóla-
árunum ritaði hann einnig nokkrar ritgjörðir, sem komu
út í Andvara 1880 og í »Geografisk Tidskrift« 1878 og
1879, og í »Budstikken« 1877 nr. 26—28. Pað var þá
nýlunda að nokkur íslenskur námsmaður ritaði svo mikið
á fyrstu námsárum sínum við háskólann sem Porvaldur,
en hann hafði þegar í skóla æft sig í að rita.
Þorvaldur kyntist miklu meira háskólakennurum sín-
um, dönskum námsbræðrum og ýmsum öðrum Dönum,
en títt var um íslenska stúdenta. Ástæðurnar til þess
voru ýmsar. Porvaldur lagði stund á vísindagreinir, sem
heldur fáir stunduðu, og enginn íslendingur. í þeim
námsgreinum, sem margir stunda, svo sem t. a. m. lög-
fræði, læknisfræði og guðfræði, kynnast prófessorarnir
sjaldan stúdentum persónulega. En þessar þrjár náms-
greinar höfðu flestir íslendingar stundað, sem til háskól-
ans höfðu farið. En er um þau vísindi er að ræða, sem
fáir stunda, og nálega þeir einir, er ætla sjer framvegis
að gefa sig við þeim, þá kynnast prófessorarnir nemend-
um sínum persónulega meira eða minna, og verða þeim
sjerstaklega vinveittir, er þeir sjá áhuga og góða hæfi-