Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 71
í'orvaidur Thoroddsen
71
Hann borgaði svo skjótt skuld sína sem hægt var, og
það liðu fá ár áður en hann tók að styrkja einn af sín-
um nánustu. Áður en hann varð veikur 1920, hafði
hann gefið fjörutíu þúsund krónur öðrum til hjálpar, eða
1000 kr. á ári að meðaltali á meðan hann hafði atvinnu
og gat unnið; það gekk auðvitað mest af þessu til manna,
sem stóðu honum mjög nærri, en það er hið sama. Hann
var líka óspar á fje til góðs fjelagsskapar og var í mörg-
um fjelögum.
Kona hans var efnuð eftir því, sem á íslandí gerist,
en miklu meira orð var gert á því, en það var í raun og
veru, því að margur hyggur auð í annars garði. Þá er
hann giftist, báðu hann ýmsir menn um fje að láni, og
skipti það samtals nokkrum tugum þúsunda kr., sem
menn vildu þá lána hjá honum af auðæfum konu hans!
Pjetur biskup gaf hvorri dætra sinna 6000 kr. í heiman-
mund; hefði það hrokkið skamt til þess að fullnægja
bænum manna. Arfur frú Thoroddsens eftir báða for-
eldra hennar var um 26 til 27 þúsund kr.; mestan hluta
hans fekk hún eftir lát móður sinnar 10. mars 1903. Hið
iangmesta af því, sem Porvaldur Thoroddsen ljet eftir sig,
vann hann sjer sjálfur inn.
Eftir það að hann settist að í Kaupmannahöfn, hafði
hann góðar tekjur. fær voru 2000 kr. eftirlaun, 1500
kr. styrkur úr ríkissjóði og 2000 kr. styrkur úr Carls-
bergsjóði, samtals 5500 kr. á ári. Svo vann hann sjer
töluvert fje inn með ritstörfum sínum, en eigi var það
eins mikið og sumir ætluðu, þótt hann ritaði mjög mikið.
Fyrir sumt fekk hann ekkert, og fyrir flest af því, sem
hann ritaði á íslensku, fekk hann 30 kr. fyrir örkina eða
26 kr.1); verður enginn feitur af þeim ritlaunum. En
’) f’jóðvinafjelagið borgaði 30 kr. í ritlaun og prófarkalestur fyrir
örkina í Andvara. fiá er höfundarnir lásu eigi prófarkir sjálfir, voru 4
kr. dregnar frá ritlaununum. Porvaldur Thoroddsen var oft á ferðum eða