Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 20
20
Foivaldur Thoroddsei
til kostnaðar við jarðfræðisrannsóknir í Skaftafellssýslu og
við safn til jarðfræðislýsingar íslands eftir reikningi alt að
looo kr. hvort árið á næsta tjárhagstímabili (1892—1893).
Um þetta leyti hafði Porvaldur fyrir fám árum tekið
að rita hið mikla rit sitt »Landfræðissögu íslands« og
vann að því alt það, er hann orkaði. Vinnutími hans
var venjulega um þessar mundir 14—15 tímar á dag.
Pað þola fáir til lengdar, þá er unnið er af kappi bæði
vetur og sumar, og hann varð líka veikur í febrúar, mars
og apríl 1892, og gat því nær ekkert starfað þá mánuði.
Hann sá að svo búið mundi ekki duga, og sótti því um
leyfi til þess að dvelja erlendis næsta ár. Pá er hann
hafði lokið skólastörfum í júní mánuði, fór hann utan og
kom til Kaupmannahafnar 7. júlí (1892). Um sumarið
safnaði hann til Landfræðissögu sinnar og vann mest að
ritstörfum. Um veturinn eftir hjelt hann nokkra fyrir-
lestra, fyrst í landfræðisfjelaginu í Kaupmannahöfn. Síðan
fór hann til Stokkhólms 8. nóvember og hjelt þar fyrir-
lestur og dvaldi þar alllengi. Annan fyrirlestur hjelt hann
í Gautaborg, og kom hann úr ferð þessari 16. desember
til Kaupmannahafnar. Pá hjelt hann fyrirlestur í fjelagi
jarðfræðinga og annan í ferðamannafjelaginu danska. Um
vorið hjelt hann fyrirlestur í jarðfræðingafjelaginu í Berlin
og var kosinn brjeffjelagi þess.
Áður en Porvaldur Thoroddsen lagði af stað til ís-
lands, sótti hann um vorið til kenslumálaráðaneytisins
um 5400 kr. á ári í 4 ár til þess að rannsaka það af ís-
landi jarðfræðislega og landfræðislega, sem hann átti þá
órannsakað. Hann ætlaði að fá vísindalega mentaðan
mann með sjer til aðstoðar, sjerfræðing í steinafræði, og
gerði ráð fyrir að hafa 10—14 hesta og tvo fylgdar-
menn; ferðakostnaðinn áætlaði hann 3500 kr., en svo
ætlaði hann aðstoðarmanninum 400 kr. og sjálfum sjer
1500 kr. til þess að vinna úr efni því, er hann safnaði.