Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 48
48
íorvaldur Thoroddsen
Amundsen. Vilhjálmur Stefánsson hefur og fengið
hana. Hann er fæddur og alinn upp í Ameríku, og er
því efasamt hvort telja má hann með íslendingum, þótt
foreldrar hans sjeu íslenskir. Porvaldur Thoroddsen mun
hafa átt það allmikið prófessor Willard Fiske að þakka,
að hann fekk medalíu þessa, en því sjaldgæfari sem hún
er, því meiri sæmd þykir að fá hana. Dalymedalían
vegur nærri því 3/4 úr pundi, og gullið í henni er metið
um 770 kr. Ameríska landfræðisfjelagið afhendir hana
jafnan á hátíðlegan hátt, og bauð því Thoroddsen að
koma til New York til að taka við henni á fjelagsfundi.
En er hann gat það eigi, bað fjelagið sendiherra Banda-
rikjanna í Kaupmannahöfn Thomas O’Brien að afhenda
medalíuna á hátíðlegan hátt á fundi í hinu kgl. danska
landfræðisfjelagi, og gerði hann það á hinum 7. fundi
fjelagsins veturinn 1906—1907, er mun hafa verið 9.
apríl. Formaður landfræðisfjelagsins var þá Kristján
ríkiserfingi, og setti hann þá sjálfur fundinn og bauð
sendiherra Bandaríkjanna og fundarmenn velkomna. Síð-
an gaf hann sendiherranum orðið, og hjelt hann ræðu til
Porvalds Thoroddsens, mintist á hin miklu vísindalegu
afreksverk hans og hve mikinn sóma hann gerði ættjörðu
sinni; einnig mintist hann Islands að fornu og nýju með
miklu lofi. Ræðan er prentuð í »Geografisk Tidsskrift*
19. ári, bls. 53—54. Síðan afhenti sendiherrann ríkis-
erfingja gullmedalíuna. Hann steig þá í stólinn og mælti
fyrst á ensku til sendiherrans og þakkaði ameríska land-
fræðisfjelaginu fyrir þann heiður, sem það hafði sýnt oss
með því að veita einum af fjelögum vorum Dalymeda-
líuna. Síðan sneri ríkiserfingi sjer að Thoroddsen, fekk hon-
um gullmedalíuna og mælti til hans á dönsku. Mintist
hann fyrst á hinar óeigingjörnu vísindalegu rannsóknir
hans, og að hann hefði fengið viðurkenningu fyrir þær
frá konungi og vísindalegum stofnunum innanlands, gull-