Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 26
26
f’orvaldur Thoroddseu
Thoroddsen lausn í náð frá embætti hans frá árslokum
að telja og með 200Ö kr. árlegum eftirlaunum.
III.
Til þess að rannsaka óbygðir íslands eins rækilega
og Þorvaldur Thoroddsen gerði, þarf bæði sterkan vilja
°g góða heilsu, mikinn áhuga og lærdóm, þolinmæði og
seiglu. Rannsóknaferðir hans í óbygðunum og á útkjálk-
um landsins sýna, eins og margt annað, hvað í hann var
spunnið, f*á er lengi er dvalið uppi í óbygðum sumar
eftir sumar getur eigi hjá því farið, að menn fái oft ilt
veður og komist í ýmsar mannraunir. Þótt Thoroddsen
veldi hásumarið til rannsóknarferða, fekk hann þó rign-
ingu í 142 daga, þoku í 90 daga, kaföld í 27 daga og
sandrok í 5 daga. Pokudagana fekk hann að tiltölu
flesta á útkjálkunum norður á Hornströndum og Mel-
rakkasljettu og Langanesi, en annars voru illviðrin eðlilega
mest og hörðust uppi á öræfum. Að eins einn dag vant-
að upp á að Thoroddsen lægi 27 vikur í tjaldi á nóttunum,
og var hann þá í óbygðum. Hann vissi hvernig það var,
að vera í óbygðum og uppi á öræfum, og hann varð að
klöngrast um alt, hvernig sem það var yfirferðar. Hann
gat eigi valið veginn þar sem greiðast var um óbygðirn-
ar, því að hann þurfti að skoða eldgígi, gjár og sprungur,
fjöll og rana, eldhraun og urðir, gljúfur og grafninga, í
einu orði alla náttúru landsins með afbrigðum hennar.
Hann gat eigi heldur slept þeim fjallstindi, sem hann
þurfti að mæla, þótt þoka kæmi, þá er hann var kom-
inn upp á hann, og hyldi alt, sem hann ætlaði að mæla.
Hann varð að klifra upp á tindinn aftur, þá er bjart veð-
ur gafst.
En hjer skal eigi fjölyrða um þetta, heldur vísa til
Ferðabókar Thoroddsens sjálfs, sjerstaklega til I. bindis,
bls. 12 —15. 1?ar hefur hann í stuttu máli lýst fjallaferð-