Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 96
y6
Hákon Finnsson
að alt fólkið komi saman á vissum stað í ákveðinn tíma.
þarf þá húsbóndinn að vera þar fyrir, og hafa á reiðum
höndum verkefni handa hverjum manni, og segja skýrt til um
hversu að skuli fara með hvað eina. — Ef fólkið vinnur í
hópum, er nauðsynlegt að hann kveði á um, hver hafa skuli
umsjónina í hveijum stað, því »daufur er höfuðlaus her«.
Finnist honum lítill hæfileika munur manna, getur hann látið
þá hafa umsjónina til skiftis, dag eða viku í senn eftir ástæð-
um. Sjerstaklega er þetta gott vegna ungra manna, því
að þeim er holt, að þeim sje lögð nokkur ábyrgð á herðar
og »ungan skal manninn reyna«. Með þessu móti kemur
það líka fram, hver best er til þess fallinn að hafa forsagnir
á verkum.
Nokkuð hefur verið rætt um vinnutímann í sveitun-
um, einkanlega um sláttinn. Má segja að sitt hafi sýnst
hverjum, og hjer ketnur eitt álitið, og skal það nokkuð rök-
stutt:
Jafnaðarvinna á dag um sláttinn virðist hæfileg 11 —12
stundir, og sje henni hagað þannig:
1. vikumánuðinn 12^/2 stund.
2. — 11 —
3. — 10 —
það virðist lítið vit í því eins og enn hagar til hjá oss,
að stytta vinnutímann við þetta verk meira en hjer er lagt
til. En tímabreytingin við mánaðarskifti er sett af þessum
ástæðum:
Fyrsta mánuðinn er grasið verðmætast og því mest nauð-
synin á að gengið sje sem best að því að afla þess. Þá eru
líka langir, bjartir og hlýir dagar. Venjulega er þá einnig
heyjað nálægt bæ og stutt að ganga að verki og frá. Eitt-
hvað mun þá og enn eftir af vorhuganum í flestum, er mun
sætta þá við að vinna dálítið lengur ásamt tilhugsuninni um,
að bráðum styttist.
Annan mánuðinn, einkum er á hann líður, er grasið oft
nokkuð farið að láta sig og rjettlætir það, að fólk leggi ekki
eins að sjer, svo og það, að dagar hafa stytst talsvert og fólk
komið lengra frá bæ, en leiðinlegt að lenda í dimmu með að
ganga heim af engjum og athafna sig áður en gengið er til
hvílu.
Alt af stendur heypskapurinn nokkuð á þriðja ntánuð,
en þegar á hann líður, er dagur mjög farinn að styttast og
veðrið að kólna en grös tekin að falla, og rjettlætir þetta alt
að tíminn sje styttur.