Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 179
Dýrar skólabækur. Verðlaunasjóður vinnuhjúa
79
Hjer ber alt að cinum brunni. Þýðandinn hefur ekki haft lag á því
sem einna mest á reið, að klæða mannlegt tal í ljóð. Allar persónur leiksins
hafa sí og æ sama tyrfna, edduborna, sjerviskulega tungutakið, sömu
óeðlilegu orðaröðina. Af þessu leiðir að talið verður víða svo tvírætt og
torskilið, að lesandinn missir alveg sjónar á þræðinum, og eina athvarf
hans til að ná honum aftur er frumritið. En þá er gagnsemi þýðingar-
innar nokkuð mikið vafamál. Eða rjettara sagt, það er ekkert vafamál
að hún er komin með dauðamörkum í heiminn, að Dalamenn hafa eign-
ast Faust, en íslendingar bíða enn eftir sínum.
Kaupmannahöfn í sept. 1922.
Jón Helgason.
Dýrar skólabækur. Á ófriðarárunum hækkaði bæði
pappír og prentun mjög í verði og bókaverð steig að því
skapi. Pó þurftu eigi þær bækur að stíga margfaldlega í
verði, sem áttu vísa kaupendur svo mörgum hundruðum eða
jafnvel þúsundum skifti á hverju ári, svo sem barnaskólabæk-
ur. En af því fjegræðgi margra óx mjög á ófriðarárunum,
notuðu sumir menn sjer þó þetta til að hækka ofmikið verð
á barnaskólabókum. I Svíþjóð og Danmörku var t. a. m.
kvartað undan slíku, og kenslumálaráðaneytið í þeim löndum
tók þá í taumana. A íslandi hækkuðu líka einstaka barna-
skólabækur meira í verði en nauðsyn var á, t. a. m. Islands
saga handa börnum eftir Jónas Jónsson. Hún er seld á 9
kr., þótt hún sje myndalaus og óvandaður og ódýr frágangur
á henni. Hún mun nú dýrust barnaskólabók í ættjarðarsögu
í heimi, enda mun enginn hafa tekið hjer í taumana og að
eins kvartað í hljóði.
Verðlaunasjóður vinnuhjúa. Um hann hefur Ársrit-
ið nú fátt að segja. Með brjefi 12. febrúar 1921 sendi jeg
formanni Búnaðarfjelags íslands skipulagsskrá sjóðsins og bað
um, að hún yrði prentuð í Búnaðarritinu og stjórn kosin fyrir
sjóðinn samkvæmt henni. Jeg ritaði bæði honum og Einari
Helgasyni garðyrkjustjóra um það, að birt væri í Búnaðarrit-
inu skrá yfir allar þær jarðir, sem greitt hefur verið fyrir í
verðlaunasjóðinn og hve mikið fyrir hverja jörð o. fl. Jeg
bað þá um að taka að sjer stjórn sjóðsins ásamt þriðja manni.
Jeg treysti þeim vel.
Alt það fje, sem komið er í sjóðinn, er á vöxtum í
Söfnunarsjóði íslands. Jeg vona að bændur og allir þeir,
sem unna bændastjettinni og velgengi hinnar íslensku þjóðar,
styðji sjóðinn, svo að hann geti sem fyrst farið að veita verð-
laun duglegum og dyggum hjúum. B. Th. M.