Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 147
Christjansen, Fjárhagssaga i63i —1699
147
sögurnar eru svo vel sagðar, að unun er að lesa þær. Alls
á rit þetta að verða 10 bindi, undir 7000 bls. Það er í
stóru broti, 41 lína á bls., og vandað mjög að pappír og
prentun. Ef prentun og pappír fellur eigi í verði, mun rit
þetta kosta um 375 kr., en samt ættu öll bókasöfn og hin
helstu lestrarfjelög á íslandi að eignast það.
Um síðustu aldamót eignuðust Norðmenn ágætt fræði-
mannatal, er J. B. Halvorsen ritaði. f:>á er tekið var að gefa
út æfisagnabók þessa, sögðu útgefendurnir, að Noregur væri
hið eina land af þeim löndum, sem gjörðu kröfu til þess að
eiga sjálfstæðar bókmentir og söguleg vísindi, er ætti eigi slíkt
rit. Annaðhvort hafa þeir gleymt íslandi eða talið það með
Noregi. íslendingar eiga enn enga æfisagnabók, en sú kem-
ur tíðin, að þeir munu eignast hana f’eim hefur eigi heldur
tekist að koma rithöfundatali á prent, þótt tvö eða þrjú ís-
lensk rithöfundatöl hafi verið samin. Sú kemur tíðin að það
mun takast líka. B. Th..M.
Carl Christiansen, Bidrag til dansk Statshus-
holdning-s Historie under de to förste Enevolds
konger. 2. Del. Kbh. 1922 (N. C. Roms Forlag) XIII
(-J— 3) —J— 990 bls. 8. Verð 15 kr., afaródýrt.
Bók þessi er um fjárhagsstjórn, tekjur og gjöld Dana-
veldis á árunum 1676 —1699. Höfundurinn, sagnfræðingur
Carl Christiansen, er embættismaður í Ríkisskjalasafninu. Hann
hefur með óþreytandi dug, nákvæmni og skarpskygni rann-
sakað allar gjörðabækur, reikninga og skjöl í Ríkisskjalasafn-
inu frá þeim tíma um fjárhagsmál Danaveldis. Á þessum
rannsóknum er rit þetta bygt, og er það um öll þau lönd,
sem lutu þá Danakonungi, eða auk Danmerkur um Noreg,
ísland og Færeyjar, Slesvík og Holstein, Oldetiburg og Del-
menhorst. Í’etta mikla rit hefur sjerstaka þýðingu fyrir oss
íslendinga, af því að það skýrir greinilega frá tekjum og
gjöldum af íslandi á þessum árum, miklu nákvæmar en aðrir
hafa gjört áður.
Fyrri hlutinn af verki þessu um árin 1661 —1676 kom
út 1908 og er XVI-j-552 bls. Þar er einnig um ísland.
Memorials of Willard Fiske. Svo heita 3 bindi, sem
prófessor Horatio S. White hefur gefið út til minningar um
prófessor Willard Fiske. í’au eru safn af ritgjörðum eftir
Fiske, og eru margar á meðal þeirra um Island og íslenskar
bókmentir, því nær allar í 2. og 3 bindinu. Rit þetta er
prentað í Boston (Richard C. Badger) og kostar hvert bindi
3 dollara.
10*