Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 63
Þorvaldui Thoroddsen
1905 feiðaöist Thoroddsen á Englandi og sumariö
eftir dvaldi hann lengi í Noregi. Kona hans var jafnan
meö honum á ferðum þessum eins og endrarnær, nema
1914, þá er hann brá sjer til Berlín, enda var hann þá
skamma hríð í burtu, og hann fór þá í sjerstöku erindi
að ósk hinna þýsku íslands vina. Thoroddsen var einn
af þeim þremur mönnum, sem áttu upptökin aö því, aö
það fjelag var stofnaö.
Á utanlandsferðum þessum var frú Thoroddsen aö
kynna sjer sögu gamals útsaums og hannyröa. Skoöaði
hún gamla messuskrúða í fjölda mörgum gömlum kirkj-
um og útsaum á söfnum í Berlín, Níirnberg, París og
London. Safnaði hún efni til bókar, er hún hafði í huga
aö rita um þetta og íslenskan útsaum, en af því varð
eigi sökum lasleika.
Pau hjónin fóru venjulega um tíma í sveit á sumrin
í Danmörku og tvö sumur í Svíþjóð (1903 og 1910);
geröu þau það sjer til hvíldar og heilsuhressingar, en þó
var þaö sjerstaklega vegna frúarinnar, því að heilsa henn-
ar tók að bila nokkru eftir andlát dóttur hennar. Thor-
oddsen hafði vinnu með sjer í sumarvistina, samdi þá
registur við rit sín og einstöku sinnum ritaði hann, en
oft las hann þá skáldsögur og ljettar fræðibækur sjer til
skemtunar og hvíldar.
Sumarið 1915 voru Thoroddsenshjónin í sveit að
eins frá 19. júní til 7. júlí. Frú Thoroddsen hrestist þá
eigi, og hurfu þau því heim aftur. Sumarið eftir satu
þau heima, því að frúin var þá lasin og treysti sjer eigi
til að fara neitt, og hugði að það mundi eigi heldur
verða sjer að gagni. 1 september veiktist hún hættulega
af lungnabólgu, en batnaði þó aftur, en þá bættust við
aðrir sjúkdómar, og líkaminn, sem var veiklaður áður,
þoldi þá ekki. Hún andaðist 22. mars. kl. 8 að kveldi
1917 eftir hálfs árs þjáningar. Petta var þungur vetur