Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 88
88
Hákon Finnsson
Stöku vinnuvargar höfðu þann sið, að »fylgja sól< með
vinnu um sláttinn, þ. e. fóru til verka um sólarupprás og
hættu ekki fyr en um sólarlag, meðan sólargangurinn þótti
nógu langur.
Þar sem langi vinnutíminn og óreglan var regla og ann-
að þektist ekki, var furðu lítið um það talað, af því að það
var vani.
Eins og við var að búast, höfðu sumir ekki orku til að
halda vel áfram allan hinn langa vinnutíma, og ætluðu sjer
þvt af með ýmsu móti, auk þess sem fólk sást leggja frá sjer
verkfærið í teignum og halla sjer, þar sem það stóð, litla
stund, en reglulaust einn og einn í senn og án þess að leyfi
húsbóndans væri til. Var ekki heldur dæmalaust að sjá hann
sjálfan fara þannig að.
Margir gengu á það lagið, eins og enn, að vera alt af
í náslætti og rabba saman, og þannig fá færi á að draga af
sjer og stytta sjer hinn langa dag. Aðrir þumbuðust sjer og
þegjandi.allan tímann og hjeldu sig að verki eftir mætti.
Máltíðir og kaffi komu víða reglulaust eða eftir því sem
húsmóðurinni þótti hentugast í það og það skiftið.
Surnir rifu í sig matinn í mesta ofboði, og stóðu svo
strax upp aftur og gengu að verki og var húsbóndinn ekki
altaf sá fyrsti, en þegar þeir fengu kaffi í teiginn, drukku
þeir úr bollanum standandi eða fóru aðeins á annað hnjeð á
meðan. — Hætt er nú samt við, að sumir hafi látið svona
meir af mikilmensku en áhuga og dugnaði, eða svo kom
mjer þetta oft fyrir sjónir. — Sumir hreyfðu sig ekki fyr en
góða stund eftir að hinir fyrstu voru farnir að vinna, en
voru að smátínast að verkfærunum eftir því sem þeim sýnd-
ist, og alt þetta ljetu sumir húsbændur afskiftalaust.
Svona var stjórnsemin 1
Þótt þetta hafi talsvert lagast á seinni árum, vantar víð-
ast stórum á að stjórnsemi á heimilum sje í lagi, og er þetta
mein eitt þeirra verri, sem verið hafa sveitlæg á íslandi og
þarf að uppræta sem fyrst. —
Nú mun óvíða unnið lengui um sláttinn en 12 — 13
stundir — nema við heyþurk — en 10 — ti stundir vor og
haust við útivinnu. En við innistörf og að vetrinum, mun
víða um litla vinnureglu að tala, enda er sumum verkum
þannig varið, eins og enn er ástatt, að óhægt er að skorða
þau innan vissra tímatakmarka
Enn er ótalin ein óregla með vinnu, sem virðist heldur
hafa farið í vöxt á seinni árum. Það er ónauðsynleg