Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Blaðsíða 60
6o
Porvaldur Thoroddsen
var við hjú sitt, má geta þess, að hún hafði jafnan sömu
vinnukonuna allan sinn búskap, og var svo nærgætin og
umhyggjusöm við hana, að hún unni frú Thoroddsen sem
móður sinni. En þótt frú Thoroddsen hugsaði fyrst og
fremst um heimili sitt, gaf hún sig þó töluvert að fje-
lagsskap og ýmsum málum, og ritaði stundum greinar í
íslensk og dönsk blöð. Hún var óvenjulega vel mentuð
bæði til munns og handa, og hafði mikinn áhuga á hann-
yrðum, teikningu og málaralist. Bæði voru þau hjónin
mannblendin og áttu allmarga kunningja, sem komu til
þeirra og þau heimsóttu. Einnig tóku þau stundum þátt
í stórveitslum, einkum þeim er landfræðisfjelagið hjelt
eða þau fjelög, sem þau voru í. Af vinum þeirra íDan-
mörku mun sjóliðsforingi Otto Irminger (fæddur 17.
nóvbr. 1836) hafa verið próf. Thoroddsen bestur. Hann
var lengi í stjórn hins danska landfræðisfjelags og ritarr
þess í 18 ár (1885—1903) og gaf þá út »Geografisk Tids-
skrift«. Af Svíum var hinn nafnfrægi náttúrufræðingur
prófessor Alfred Gabriel Nathorst (f. 7. nóvbr. 1850,.
d. 20. janúar 1921) honum mjög kær og skrifuðust
þeir á í mörg ár á meðan heilsan leyfði. Honum sendt
Thoroddsen safn sitt af jurtasteingjörvingum, er hann
safnaði á norðvesturkjálka íslands, fyrir norðan Gilsfjörð
og við Hreðavatn og þar í grend; ætlaði Nathorst að
láta rannsaka það, en af því varð eigi; er safn þetta nú
í »Vetenskaps Akademiens Museum® í Stokkhólmi.
Á Þýskalandi og Englandi þekti Thoroddsen marga
menn og átti þar ýmsa góða kunningja; af núlifandr
mönnum skal hjer að eins nefndur dr. Heinrich Erkes,.
bókavörður í Köln. Á fýskalandi var fröken Marga-
rethe Lehmann-Filhés (f. 1. septbr. 1852, d. 17.
ágúst 1911) eflaust besti vinur hans og þeirra beggja
Thoroddsenshjónanna. Porv. Thoroddsen hefur í æfi-
ágripi því, er hann ritaði um hana og prentað er í Eim-