Andvari - 01.01.1975, Qupperneq 58
56
ÁRNI GUÐMUNDSEN
ANDVARI
uppá það, kannske slíkt rætist einhvem
tíma, en þá verður líklega breyting orðin
á mörgu, sem helzt mætti vera óbreytt.
Heilsaðu pabba kærlega og drengjun-
um samt Nýju og Borgu.
Að þú og þið öll megið ætíð lifa sem
bezt, þess óskar
þinn elskandi sonur
Á. GuSmundsen.
Washington Harbor, 20. janúar 1873
Elskulegi pabbi.
Þitt elskulega bréf af 12. október með-
tók ég 27. f. m., hvar fyrir ég þakka þér
innilega. Það gladdi mig að heyra, að þið
voruð þá frísk og ánægð, að drengjunum
gekk vel við examen (það hafði ég áður
séð af Þjóðólfi, er Wickmann heldur) o.
s. fr. Ég get ímyndað mér, að ykkur
hafi þótt skemmtilegt að ríða á milli góð-
búanna og stórbokkanna í Húnavatns-
sýslu; vænt þótti mér líka að heyra, að
systkinum mínum á Hjaltabakka líður vel,
að laxinn hafði villzt í netin og fl. Skyldi
Hekla fara að kasta upp? Mikið líklegt;
hún hefði átt að gjöra það áður en við
fórum, að við hefðum séð hana í almætti
sínu.
Síðan ég skrifaði seinast, hefi ég verið
frískur, verið hér á sama stað að höggva
Ceder og brenni ásamt hinum 3 löndum,
Bjarna, Stefáni og Hans, og þar að auki
hefir Jón Gíslason verið hér líka; hann
er hættur að búa fyrir það fyrsta, enda er
félagi hans Wickmann búinn að kveðja
eyjuna og farinn til Milwaukee, hvar
hann er clerk (Assistent). Það er óhætt
að segja, að hann (W) ckki hafi grætt
annað hér en skuldir, enda er maðurinn
enginn búmaður. Veturinn byrjaði hér í
miðjum nóvember með snjó og frosti, og
man ég ekki eftir eins miklurn kulda á
Islandi, eins og hér var í kringum jólin,
og ímynda mér, að frostið hafi náð
-r-25 — 30° - Réaumur; því í nágrenninu
er enginn mælir, svo ekki geta menn ná-
kvæmlega sagt, hve kuldinn hefir verið
mikill. Nú sem stendur er að minnsta
kosti álnar snjór á allri eyjunni og sum-
staðar meira, samt liggur hann nokkuð
jafnt yfir, þar sem hér er aldrei skafbylur
sökum skógarins. Þrátt fyrir kulda þenna
hefir okkur aldrei verið kalt úti við verk,
en heldur í rúminu á næturnar, því hús
það, sem við búum í, er sannkallaður
hjallur, eins og flest hús hér á eyjunni,
enda man enginn eins harðan vetur eins
og þennan og þann í fyrra; er það furða,
að hér skuli vera kaldara en norður undir
heimsskauti, þar eyja þessi liggur jafn-
sunnarlega og París. Er líklegt, að hin
miklu stöðuvötn, sem liggja hér á alla
vegu, olli kulda þessum. Ekki nenni ég að
segja þér, hvað mikið ég hefi innunnið
mér í vetur, það er ckki mikið, en svo
mikið get ég sagt, að ég ckki er ónýtasti
vinnumaður af þeim hér verandi löndum;
þeir eru sumir latir að ganga í skóginn,
er þetta ekki ónáttúrlegt, þar sem þeir
eru ungir og óvanir erfiði.
Allstaðar í Sambandsríkjunum og Can-
ada hefir verið ákafleg snjókoma í vetur,
svo að járnbrautir hafa víða orðið að halda
kyrru fyrir sökum fannkomu; í Canada
hefir snjórinn á sumum stöðum verið
7-11 feta djúpur. Idér á eyjunni er
dauft á veturna, þar engar samgöngur eða
litlar eru við meginlandið, nema þar ein-
hver bregður sér gangandi í land, sem
sjaldan er, því það er æðilangt yfir ísinn.
Verður maður því að skemmta sér með
því að heimsækja hver annan, og er fólk
hér mjög gestrisið. Eyjarbúar halda frétta-
blað, sem er útgefið einu sinni í viku af
Skandinövum í Chicago og heitir