Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1975, Page 75

Andvari - 01.01.1975, Page 75
andvari FRÉTTABRÉF FRÁ NÝJA-ÍSLANDI 73 gott, að honum gangi vel, því það er vænn maður og mesta lipurmenni.20 Arni bróðir hans hefur sett hér skóbúð og er í upp- gangi.21 Páll Jóhannsson er í beztu kring- umstæðum.22 Urn verðlag á vörum hér er ekki gott að segja, því það er mjög breytilegt. Hins má geta, að cent og dollar er hér ekki betra í almennum kaupum og sölum en skildingar og dalir heima. Sem stendur vantar okkur ekkert eins og markað fyrir okkar mikla og góða fisk, því aflinn er fjarska mikill, svo í vor fengu menn oft 1 - 200 í 1-2 net, og margir urðu að hætta að veiða, því þeir gátu ekki verkað meiri fisk. Mikið er talað um að koma hér á fiskverzlun, einkum niður- suðu, hvernig sem það gengur. Mér dettur í hug, að máski nokkrir af ykkur vilji spyrja mig að: Eigum við að fara til Nýja-íslands? Þessari spurningu er ekki gott að svara, því það er svo mikið komið undir kringumstæðum og sérstök- um hæfilegleikum hvers og eins. Þó vil eg helzt ráðleggja mönnum að bíða fyrst og sjá, hvað úr ókkur verður. Líka hefur stjórnin auglýst, að hún ekki láni okkur rneira. En að hér sé betra að búa en heima, þegar maður er búinn að koma sér í lag, er ekkert spursmál, en flestir eru orðnir félitlir, þegar hingað koma, og eru því stundum lengi að komast yfir þá peninga, er þeir hafa látið í ferðakostnað, og verða því að vonum að ncita sér um rnargt, sem þeir gátu veitt sér heima, einkurn ef þeir voru í bærilegum kringumstæðum. En allt stjórnarform er hér langtum frjálslegra en heirna, og lítið sýnist mér horfa til batnaðar i því efni, eftir sem blöðin segja 1 vetur, cnda ekki við því að búast, mcðan kiggjafarnir byggja allt á hinum margúr- elta og óhafandi grundvelli og sníða allar hugsanir sínar eftir hinu gamla einveldis- forrqi, Af sjálfum mér er það að segja, að mér líður vel. Ég hef haft stöðuga atvinnu síðan fyrir jól að skipta stjórnarlánsvör- um milli manna. Það er mikið og athuga- samt verk, en ekki þung vinna. Eg heí þrjár kýr og einn kálf. Hús keypti ég í vor fyrir 85 dollara og hef látið þilja það inn- an. Ég á væna eldstó með öllum áhöldum og flest búsgögn, er ég þarf. í vor fór ég í félag við agent okkar, Jón Tælor.23 Við girtum, undirbjuggum og sáðum í stórt stykki 18 búsélum af kartöflum, nokkuð af baunum og bóghveiti og fleira. Kartöfl- urnar og baunirnar líta mikið vel út, en bóghveitið er ónýtt, því útsæðið var skemmt. Við eigum þetta til helminga. Líka hefi ég dálítinn garð við húsið mitt með næpum, rófum, lauk, hveititopp og dálítið af kartöflum, sem við fórum að borða seint í júlí, en ekki vóru þær þó stærri en lóuegg. Ég hef nóga mjólk og yfirhöfuð meira af því, er kallað er daglegt brauð, cn ég hafði oft heima. Þrjú börn mín eru hjá mér, cn Valgerður mín er hjá Friðjóni.24 Þó rniði þessi sé ljótur og lélegur, þá vonast ég þó eftir, að nokkrir af ykkur sýnið mér það kunningja merki að skrifa mér línu, því það er leiðinlegt að hafa ekki fengið cina einustu línu að heiman, síðan ég kom hingað. Að cndingu verð ég að biðja ykkur að leiðrétta allar ritvillurnar og virða á betri veg, þó miðinn sé illa úr garði gjörður og ósamhangandi, og gæta þess, að hann er ekki ætlaður til prentunar, heldur góð- kunningjum til gamans. Óska ég ykkur svo allra framfara og blessunar. Ykkar einlægur Björn Jónsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.