Andvari - 01.01.1975, Page 94
92
GUTTORMUR J. GUTTORMSSON
ANDVARI
fjölda sönglaga, sem vöktu aðdáun og
urðu þjóðkunn. Skáldahjónin Sigfús
Benediktsson og Margrét búsett í Mikley
beittu sér fyrir nýjum hugarstefnum,
hann frjálstrúarefnum, en hún kvenrétt-
indum. Sem kunnugt er, er Margrét
brautryðjandi kvenréttinda í Canada,
stórgáfuð kona, vel máli farin og mælsk
með afbrigðum. Skrifuðu þau fjölda
blaðagreina um sín hugðarefni. Þá voru
margir ritfærir í byggðinni og rituðu
blaðagreinar um flest eða öll mál, sem
voru á döfinni. Verður ekki sagt, að þcir
svæfi svefni hins andvaralausa. Ritsnill-
ingur nokkur, sem ritaði undir gervinafn-
inu Juniper Dick, tók sig fram um að
gera þá verandi sveitarráð ódauðlegt, rit-
aði flugrit og sendi á hvert pósthús í ný-
lendunni. Lærðu margir það utanbókar
og kunnu það betur en kristindóminn.
Rit þetta var parodía eða stæling af fund-
argerning sveitarráðsins. Dramatis per-
sonæ þess voru:
Jón oddviti
Jón skrifari
Jón smyrill
Jón kjaftur
og Jón kvenholli.
Frá upphafi landnámsins hefir mikil
rækt verið lögð við sönglist. Er söngflokk-
urinn, sem við heyrðum á í dag, eitt marg-
stirnið (og eitt hið bjartasta) í sjöstjörnu-
kerfi stórra söngflokka, sem komið hafa
fram á sjónarsviðið, „því vel mér sýndist
sungið". Sigurgeirssynir — hinir svonefndu
Grundarbræður, gerðu garðinn frægan á
Mikley. Gunnsteinn Eyjólfsson var reiðu-
búinn að kenna hverjum unglingi, sem
vildi læra, söngfræði - ókeypis. Man ég,
að hann kenndi fjölda unglinga söngfræði
á sunnudögum. Söngflokka æfði hann
iðulega og efndi til stórfelldra samsöngva.
Lögin, sem hann valdi til þeirra, voru
engir húsgangar, heldur hásigld klassik
svo sem „Hósíanna" og „Brúðarförin í
Harðangri".
Og aldamótin (1900-1901) voru gerð
hátíðleg mcð lúðrablæstri, básúnuþyt og
bumbuslætti lúðrasveitar, er kenndi sig
við Lund og var sú eina sinnar tegundar
á öllu svæðinu frá Selkirk-lslendingum
til Eskimóa. Fyrstu ungmenni í norður-
byggðum Nýja-íslands, sem leituðu æðri
menntunar á öðrum stöðum, voru þau Dr.
Runólfur Marteinsson og Salín Pétursson.
Til þeirra verður rakið samhengi særndar
þeirrar, er Nýja-ísland hefir haft af sínum
námsmönnum.
Tíminn leyfir ekki að nefna nema „fáa
fleiri“: Þorvald Þorvaldsson Master of
Arts, Þorberg Þorvaldsson háskólapró-
fessor og vísindamann, Jóhannes Pálsson
lækni og rithöfund, síra Guttorm Gutt-
ormsson, er bar af öllum sínum háskóla-
bræðrum í grísku og latínu, Stefán Gutt-
ormsson, er bar af sjálfum prófessorunum
í stærðfræði. Þessi sjálfmenntaði ungling-
ur nýkominn neðan úr Nýja-Islandi til
Winnipeg í háskólann leysir stærðfræði-
dæmi, sem prófessorinn, kennarinn hans,
réði ekki við.