Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 8

Andvari - 01.01.1979, Page 8
6 JÓN ÞÓRARINSSON ANDVARI um var kærast allra, en það var organleikarastarfið við dómkirkjuna í Reykja- vík, enda naut hann þar hæfileika sinna og menntunar til fullnustu. Organleikur hans í kirkjunni, tónleikahald og kennsla ungra organleik- ara hefur haft áhrif, sem ná víða og Islendingar munu lengi búa að. Um tónleikahald hans hér og erlendis verður rætt síðar í þessari grein. Einnig verður fjallað nokkuð um tónverk þau, er hann lét eftir sig. Meðal þeirra eru kórverk, hljómsveitarverk, leikhústónlist, tónverk fyrir orgel, nokkur píanóverk og fjöldi sönglaga. Afköst Páls á þessu sviði eru meiri en ætla mætti, þegar hvorttveggja er haft í huga: umfang þeirra starfa annarra, er hann hafði með höndum, og það, hversu tímafrek iðja tón- smíði er. Páll ísólfsson var fæddur í Símonarhúsum á Stokkseyri 12. október 1893. Foreldrar hans voru ísólfur Pálsson og Þuríður Bjarnadóttir, og var Páll elztur af tólf börnum þeirra hjóna. Ísólfur Pálsson var á margan hátt merkilegur og óvenjulegur gáfumaður. Hann var sonur Páls Jónssonar hreppstjóra í Syðra-Seli við Stokkseyri og konu hans, Margrétar Gísladóttur Ijósmóður. Bæði voru þau af hinni alkunnu Bergsætt. Þau áttu einnig tólf börn, og var ísólfur yngstur þeirra. í Syðra-Seli var menningarheimili og þeir Sels-bræður miklir frömuðir í félagslífi á Stokkseyri og Eyrarhakka. Þungur harmur var kveðinn að þessari fjölskyldu, þegar heimilisfaðirinn, Páll Jónsson, fórst í lendingu í Þorlákshöfn í febrúar 1887, ásarnt Bjarna syni sínum. Bjarni, sem var tæplega þrítugur að aldri, var formaður á bát þeirra feðga. Hann var org- anleikari í Stokkseyrarkirkju, samdi lög, skrifaði leikrit og hafði af eigin ramleik lært frönsku svo vel, að hann var læs á bækur á því máli. Sonur hans var Friðrik Bjarnason, tónskáld í Hafnarfirði. Skuggi þessa hörmulega slyss mun lengi hafa hvílt yfir fjölskyldunni. En Margrét Gísladóttir, sem var dugmikil gáfukona, stóð fyrir búinu á Syðra-Seli eftir fráfall manns síns. Eftir að ísólfur var uppkominn, stundaði hann sjó eins og aðrir Stokks- evringar, varð formaður og fórst þzð ágætlega, hafði orð fyrir að vera heppinn, varfærinn, veðurglöggur og forspár. Af fáeinum tímaritsgrein- um frá efri árum hans má sjá, að hann Jiefur verið athugull fróðleiks- maður. Hann var sjálflærður læknir, og var talið, að hann hefði veitt mörgum bót meina sinna. Hann var uppfinningamaður, en fór dult með. I vestur-íslenzka blaðinu Lögbergi frá 1909 er þó sagt frá ýmsum upp- finningum hans, og vekur það furðu, hve margt hann hefur á prjónunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.