Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 9

Andvari - 01.01.1979, Page 9
ANDVAfll PÁLL ÍSÓLFSSON 7 iMest fer fyrir „hljóðritunarvél“, senr „ritar á pappir alla þá tóna, sem koma fram í því lrljóðfæri, sem hún er í sambandi við, og sýnir nákvæm- lega hæð, dýpt, varanleik og styrkleik hvers tóns fyrir sig, jafnt hvort spil- að er einraddað eða margraddað." Fleiri uppfinningar ísólfs eru tengdar tónlistinni. Aðrar hafa ef til vill hagnýtara gildi, svo sem „viðvörunar- tæki gegn eldsvoða“, en þar er um að ræða rafmagnsbjöllu, sem hringir, þegar hiti fer yfir ákveðið stig. Þessi hugmynd verður enn athyglisverðari, ef haft er í huga, að hún er fram komin fullum áratug áður en bæjarstjórn Reykjavíkur fór að íhuga í alvöru, hvort hagkvæmt mundi vera að virkja Elliðaárnar til framleiðslu á rafmagni. Listgáfur Isólfs voru ótvíræðar og fjölþættar. Hann lék í sjónleikjum, sem settir voru á svið í Góðtemplarahúsinu á Stokkseyri á vetri hverjum. Hann var ágætlega hagmæltur. Hann var organleikari í Stokkseyrar- kirkju, þegar Páll sonur hans var að alast upp og þar til fjölskyldan Huttist til Reykjavíkur. Organleik hans var við brugðið. En lengst mun hans verða minnzt fyrir lögin, sem hann samdi og lét eftir sig, en sum þeirra eru hreinar perlur í hófsemd sinni, einfaldleik og yfirlætisleysi. Páll Isólfsson hefur lýst föður sínum þannig: „Hann var þunglynd- ur að eðlisfari, hló sjaldan, en hafði viðkvæma lund undir harðri skel og brosti fallega." :) ísólfur var maður mjög dulur og mun hafa verið fáskipt- inn á heimili, en gat verið glaður og ræðinn í sinn hóp og er sagður hafa haft góða kímnigáfu. Páll mat föður sinn mjög mikils og dáði hann, en samband þeirra mun ekki hafa verið náið. „Mér er hann afar minnisstæð- ur,“ segir Páll, „þar sem hann sat í húminu og lék á orgelið af fingrum fram, fantaseraði og samdi lög. Þá var ég allur ein hlust, ekki sízt þegar „I birkilaut hvíldi ég hakkanum á“ kom á móti okkur út úr orgelinu eins og nýfætt lamb, sem dillaði rófunni framan í vorið og sólina.“ Þannig mun Is- ólfur hafa sagt syni sínum í tónum það, sem hann ef til vill lét ósagt í orðum. Þuríður, móðir Páls ísólfssonar, var dóttir Bjarna Jónssonar í Símonar- húsum og konu hans Þórdísar Eyjólfsdóttur. Um móður sína segir Páll, að hún „skipti sjaldan skapi og hafði kvenna mest vit á að þegja, ef svo horfði. Hún var alúðlev 02 elskuW kona, en duldi harm sinn. Hún var 00 O syni sínum hlý og góð. Fyrstu búskaparár þeirra Þuríðar og ísólfs bjuggu þau 1 sambyli við ') í bókinni Hundaþúfan og hafið. Matthías Johannessen ræðir við Pál ísólfsson (Rvík 1961). Margt, sem hér er skrifað, styðst við heimildir í þessari hók og framhaldi hennar, I clag shein sol (Rvík 1964). Orð, sem höfð eru eftir Páli ísólfssyni innan tilvitnunarmerkja, eru þangað sótt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.