Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 45

Andvari - 01.01.1979, Page 45
GORAN SCHILDT: Sínum augum lítur hver á silfrið Kafli sá, sem hér fer á eftir í íslenzkri þýdingu, er birtur med leyfi höfundar og tekinn úr bók hans Dianas ö, er prentud var í Svíþjód 1977. Dr. Göran Schildt er finnskur rithöfundur, sem setzt hefur ad á grísku eyjunni Leros í Eyjahafi, er Englendingurinn Bernard Randolph kalladi á 17. öld eyju Díönu. Höfundurinn er þaulkunnugur Grikkjum og Grikklandi, hafdi siglt á eigin báti margsinnis milli grísku eyjanna um nœr tveggja áratuga skeid, þegar hann settist um kyrrt á Leros. Hann segir í lok formála bókarinnar: „Grikklandsárin hafa ordid mér til einna mestrar uppörvunar í lífi mínu, og ég er mjög þakklátur fyrir þau. Eg vona, ad menn finni, hve einlœga ást ég ber til lands og þjódar, einnig þar sem ekki vard hjá því komizt ad skýra frá ýmsu miður lofsverðu. Þar er fremur aðstœðum um að kenna en þjóðinni sjálfri.“ Þýddi kaflinn heitir í bókinni Pengar (Peningar), en á undan fer hér sem eins konar inngangur fyrri hluti örstutts kapítula, er nefnist: Að vera Grikki. Á Norðurlöndum er mikið ritað og rætt urn hlutverk kvenna, lækna, ellilíf- eyrisþega o. s. frv. Hugtakið er tengt þeirri lífsskoðun, að maðurinn sé sjálf- ráður gerða sinna, geti valið og hafnað, öriög séu ekki til. Hann hefur að ýmsu leyti leyst sig úr læðingi. Við erum ekki eins háð siðum og venjum og áður fyrr, við gagnrýnum þær, breytum þeim og teljum okkur trú um, að við séum upp yfir þær hafin. Vandinn er bara sá, ef við viljunr ekki leika gömlu hlutverk- m, að við verðum að skapa okkur ný, sem reynast oft örðugri en þau gömlu °g þrautreyndu. Það eru ekki allir leik- ritahöfundar gæddir innsæi og tilfinn- ingu fyrir hinurn margslungna harmleik °g boðskap hans. Vissulega þarf að end- urskoða hlutverk kynjanna í breyttu samfélagi, en það gerist naumast með einhliða vígorðum og skammsýnni fé- lagshyggju. Hlutverkin á leiksviði lífs- ins eru ekki til þess samin, að þau verði sem einföldust og auðleiknust, heldur til þess að bæði leikarar og áhorfendur njóti gleðinnar af því, þegar vel tekst til. Hér á eynni Leros tala engir um hlut- verk, fólk tekur ekki slíka afstöðu til sjálfs sín. Hins vegar verður hlutlaus áhorfandi fyrir sterkum leikhrifum vegna þess, að hér !úta allir fastmótuð- um og sérkennilegum leikreglum. Það er tvennt ólíkt að vera barn hér eða á Norðurlöndum, stúlkur eru aldar upp á allt annan hátt, og fjölskyldan leggur fjárhagsbyrðar á herðar feðrum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.