Andvari - 01.01.1979, Blaðsíða 66
64
RUTH CHRISTINE ELLISON
ANDVARI
í'æri þeim vörur þær, er þeir óska eftir, fyrir sauðté... Út af því góða boði E. M.
að vilja útvega skip nreð mat og fóður til Vesturlandsins, þá skal þess getið, að
ég sýndi liinum setta landshöfðingja bréf bans, en bann áleit, að eigi bæri nauð-
syn til að nota boðið, eftir þeim skýrslum er honum höfðu borizt, enda væri
þess eigi kostur."
Næsta grein í blaðinu fjallar um árferðið og byrjar á þeim góðu fréttum,
að
grasvöxtur hefir á öllu Suðurlandi mátt heita góður, og sumstaðar austanfjalls
jafnvef í bezta lagi einkum á harðvelli; nýting hefir sömuleiðis mátt yfir höfuð heita
góð, þótt töður manna hrektust sums staðar nokkuð. A Vesturlandi mun grasvöxtur
óvíðast hafa (verið) góður, en þó yfir höfuð skárri en í fyrra, og nýting hefir þar
verið hin bezta.
Seinna er þó minnzt á, að
■eacu
aftur á móti höfðu þegar síðast fréttist gengið stöðugir óþurrkar fyrir norðan
einkum kringum Húnaflóa og Skagafjörð, og fyrir 10 dögum síðan var varla nokkur
baggi orðinn þurr í Húnavatnssýslu, en nrenn vænta þess þó, að heyin mundu
skemmast rninna en við hefði rnátt búast, vegna þess að óþurrkunum voru sam-
fara sífelldir kuldar og öðru hvoru frost og snjókoma.
Bréfin, sem skrifuð voru blöðunum í Englandi til að mótmæla samskot-
unum, voru ekki nærri því eins hleypidómalaus og kurteis í garð Eiríks Magnús-
sonar og grein Eiríks Briem. Strax 16. september birtist í Tbe Scotsman bréf
lrá R. og D. Slimon, en fyrirtæki þeirra stóð öllum framar í verzlun milli
Breta og Islendinga. 1 bréfinu stendur, að Cogbill umboðsmaður þeirra bafi þá
verið sex vikur í verzlunarferð um Norðurland.
Hann gefur okkur ástæður til að neita hiklaust stórýktum yfirlýsingunr þeim, er
nýlega hafa verið gefnar út í blöðunum í Lundúnum. Sannleikurinn er sá, að það
voraði seint, og hafísinn fyrir landi hefir teppt að ráði venjulegar samgöngur,
með þeirn afleiðingum, að flutningur á nýlenduvörum o. fl. hefir brugðizt. Hvað
búfé viðvíkur, lætur hann okkur í té, að íslendingar muni geta flutt út fleiri sauði
en nokkurn tírna síðastliðna áratugi, og eru þeir í mun betra ásigkomulagi en að
undanförnu. Við höfum samið um að flytja út meira en 20.000 sauðfjár og notum
tvö gufuskip í flutningana.
Þessu bréti svaraði Eiríkur Magnússon í The Scotsman 20. september með
iþví að segja, sem satt var, að yfirlýsingar samskotanefndarinnar fóru nákvæm-
Jega eftir því, sem Hilmar Finsen láhdsböfðingi hafði skrifað Islandsráðgjafa
í Höfn og gefið var út i Bcrlirigske Tidende 2. júlí. Auk þess benti hann
lesendunum á það, að þessi stóraúkna verzlun Cogbflls á Norðurlandi þurfti
ekki endilega að þýða, að bændur ættu óvenju margt sauðfé, sem þeir vildu
losna við, beldur að þeir væru neyddir til að láta allt, sem bægt væri að selja,
til þess að geta keypt kúafóður og aðrar nauðsynjavörur. Ennfremur ]ét bann í