Andvari - 01.01.1979, Page 86
84
HERMANN PÁLSSON
ANDVARl
beitt miklu flóknara kerfi, þar sem önnur atriði, svo sem hugmyndir sagna um mann-
inn yfirleitt, rittækni, bygging, persónulýsingar og svo framvegis, ráða engu miður
um rannsóknir en þær lýsingar, sem kunna að vera um það sem eitt sinn hafði
gerzt. Við rannsóknir á skáldlegum einkennum Islendingasagna tökum við til
greina og samanburðar allar frásagnabókmenntir vorar að fornu, í bundnu máli
og óbundnu, þýddar og frumsamdar, hvort sem aðalpersónan er víkingur, bóndi
eða heilagur maður, íslendingur eða fornsagnahetja. En við rannsóknir á hug-
myndum Islendingasagna geta öll fornrit vor skipt máli, hómilíur og hvers konar
fræðirit, ekki síður en sögur og frásagnakvæði. Og þegar rit á íslenzka hrökkva
skammt til skýringar, skyggnumst við um í hugmyndaheimi álfunnar eins og hann
leit út á tólftu og þrettándu öld.