Andvari - 01.01.1979, Qupperneq 87
ÁRNI KRISTJÁNSSON:
Með Wagner í Bayreuth
Á hallanda sumri ár hvert, þegar skógurinn dökknar og vínviðurinn vefur sig
um hæðir Frankalandsins, skrýðist einnig Bayreuth, borgin milli hæðanna við upp-
tök Mainelfar, sínu bezta skrúði og heldur hátíð, sem um skeið breytir þessum
litia kyrrláta bæ í höfuðborg tónlistarlífsins í Evrópu. Gestir og gangandi streyma
þangað úr öllum áttum, músíkantar af öllu Þýzkalandi, hljóðfæraleikarar með
gigjur sínar, lúðra og hljóðpípur, söngvarar og sviðsstjórar, tæknimeistarar, trúðar,
leikarar og aðrir listarinnar þjónar, fréttamenn og ferðamenn, sem koma unn-
vörpum til þess að sameinast undir merki meistarans, er stofnsetti hér á þessum
stað þýzkt þjóðleikhús fyrir rúmum hundrað árum.
011 borgin verður iðandi af lífi. íbúarnir, sem hversdagslega sýsla við störf
sín í kyrrþey, snúast nú um framandi gesti úr nýja og gamla heiminum, en loftið
fyliist kliði ólíkustu tungumála, er brotna hvert við annars hreim í margvíslegum
biæbrigðum, - í gistihúsum og á götum úti. Wagner, - þetta orð eiga allar tungur
sameiginlegt, þótt hver kveði að því á sinn hátt, - Wagner er sameiningartákn
allra, er hingað sækja.
Bayreuth er borg Richards Wagners og virki Iistar hans. Hér fann þessi órólegi
andi loks samastað eftir stormasamt líf, löngum í útlegð frá föðurlandi sínu, hér
stendur hús hans Wahnfried, „wo mein Wáhnen Frieden fand“, eins og hann lét
letra á framhlið þess, - hér lagði hann grundvöll að frama sínum og veraldarfrægð,
og hér, - í grænum lundi að baki húss síns, var hann liðinn lagður í mold. Niðjar
hans hafa búið í Bayreuth eftir hans dag og haldið heiðri hans hátt á loft: fyrst
Siegfried sonur hans, sem tók við arfinum ásamt móður sinni Cosimu, dóttur
Liszts, - en hún var lengi æðsti prestur í musterinu, - og síðar synir Siegfrieds
tveir, Wieland og Wolfgang, og þeirra móðir Winifred. Wieland er nú allur, en
Wolfgang lifir og stjórnar leiksýningum í Festspielhaus. í meira en níu áratugi
Lefir „goðið í Bayreuth" - eins og Debussy kallar Wagner - setið þar á stalli og
laðað til sín pílagríma hvaðanæva svo þúsundum skiptir, er koma þangað yfir lönd
°g höf á hverju sumri til að njóta listar hans, dýrka hann og vegsama.
Hér, í Bayreuth, rættust draumar Richards Wagners. Draumar Wagners? Já,
Wagner dreymdi stóra drauma: - um nýtt samfélag, nýja menningu, nýtt líf og
nÝja list, nýtt leikhús handa þjóðinni í andstöðu við hirðleikhús þeirra tíma, og
hann boðaði hugsjónir sínar í ræðu og riti, en einkum þó í söngleikum sínum,
sem áttu að vera fyrirmyndir eða frummyndir að listaverkum framtíðarinnar og
jafnframt magnaðar hugvekjur til nýrra lífsskoðana. „Der Ring des Nibelungen"