Andvari - 01.01.1979, Síða 91
ANDVARI
MHÐ WAGNER í BAYRHUTH
89
Hér sjást gamlar hallir, eins og svo
víða á Þýzkalandi, frá þeim tímum er
landið skiptist í konung- eða fursta-
dæmi, og gnæfir ein þeirra á hæð fyrir
enda götunnar, sem ég bjó við, en
skammt þar frá stendur óperuhús gam-
alt, er markgreifinn, sem þarna sat, lét
reisa í ítölskum barokkstíl, forkunn-
arfagurt að innan og eitt hið fegursta
í álfunni frá þeim tíma. Þarna, í þessu
leikhúsi flutti Wagner IX. Sinfóníu
Beethovens sem upphaf að fyrstu há-
tíðarsýningunni í Bayreuth 1876.
Þó að andi Wagners svífi hér yfir
vötnunum, er einnig annarra að minn-
ast. Hér fæddist Max Stirner - öðru
nafni Kaspar Schmidt, heimspekingur
og anarkisti, sem afneitaði trú, siða-
lögmáli og ríkisvaldi, „hinum betra
manni“, er hann kallaði svo, og hér, í
Bayreuth, átti skáldið Jean Paul Richt-
er, andlegur lærifaðir Schumanns,
heima um langt skeið, og er ein gatan
við hann kennd. Og í gamla borgar-
grafreitnum hvílir Franz Liszt undir
lágu leiði, steinhellu, umkringdri blóm-
um og dvergsýpressum. Á hellunni lágu tvö lauf, annað visið og klesst niður í
steininn, hitt grænt og lifandi.
„Wahnfried", hús Wagners, var lokað öllum óviðkomandi, en minjasafnið,
sem er í námunda við það, stendur hverjum gesti opið. í leiðinni þangað skoða
menn gröf þeirra Richards og Cosimu, þar sem þau hvíla saman. Hávaxin lauf-
tré fella saman krónur sínar yfir þessu leiði eins og yfir Tristan og Isold forðum.
Fugl kvakaði á grein, meðan ég stóð þar við.
Það er meira en dagsverk að skoða Gedenkstátte eða Minjasafn Richards
Wagners. Þar eru ógrynni mynda, handrita, bréfa. Myndir af Wagner og fjölskyldu
hans og öllu því fólki, sem kom við sögu hans, myndir frá þeim stöðum, þar sem
hann dvaldi, ljósmyndir, leiksviðsmyndir, uppdrættir, teikningar, málverk, högg-
myndir; handrit að tónverkum hans, leiktextum og öðrum ritum; bréf hans sjálfs
og annarra; skjöl, auglýsingar, efnisskrár, - öllu raðað í tímaröð, svo að auðvelt
er að lesa lífsferil tónskáldsins úr þessum gögnum. Þarna eru og margir aðrir
munir, svo sem hljóðfæri, taktsprotar, ritföng, tóbaksdósir, húsgögn og margt
annað. Þarna má t. d. sjá flygil meistarans, sem hann kompóneraði við, og sófann,
sem hann sat á í Feneyjum, er dauðinn vitjaði hans. Allt, sem við sjáum, skýrir
mynd þessa geníala anda og persónu hans, hins lágvaxna, granna, skarpleita manns
með kúpta ennið yfir bognu nefi og útstandandi höku, - hins kinnbeinabera, fagur-