Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 125

Andvari - 01.01.1979, Page 125
ANDVARI GAMANSEMI SNORRA STURLUSONAR 123 skulu nú sýnd nokkur frekari dæmi um það og þá fvrst frásögn 7. kap. af Björgólfi í Torgum. Björgólfr hét maðr á Hálogalandi. Hann bjó í Torgum. Hann var lendr maðr, ríkr ok auðigr, en hálfbergrisi at afli ok vexti ok kynferð. Hann átti son, er hét Brynjólfr. Hann var líkr feðr sínum. Björgólfr var þá gamall ok önduð kona hans, ok hafði hann selt í hendr öll ráð syni sínum ok leitat honum kván- fangs. Brynjólfr átti Helgu, dóttur Ketils hængs ór Hrafnistu. Bárðr er nefndr sonr þeira. Hann var snemma mikill ok fríðr sýnum ok varð inn mesti atgorvis- maðr. Þat var eitt haust, at þar var gildi fjölmennt, ok váru þeir Björgólfr feðgar í gildinu göfgastir menn. Þar var hluíaðr tvímenningr á öftnum, sem siðvenja var til. En þar at gildinu var maðr, er Högni hét. Hann átti bú í Leku. Hann var maðr stórauðigr, allra manna fríðastr sýnum, vitr maðr ok ættsmár ok hafði hafizt af sjálfum sér. Hann átti dóttur allfríða, er nefnd er Hildirfðr. Hon hlaut at sitja hjá Björgólfi. Töluðu þau mart um kveldit. Leizt honum mærin fögr. Litlu síðar var slitit gildinu. Þat sama haust gerði Björgólfr gamli heimanför sína ok hafði skútu, er hann átti, ok á þrjátigi menn. Hann kom fram í Leku, ok gengu þeir heim til húss tuttugu, en tíu gættu skips. En er þeir kómu á bæinn, þá gekk Högni á mót honum ok fagnaði vel, bauð honum þar at vera með sínu föruneyti, en hann þekkðist þat, ok gengu þeir inn í stufu. En er þeir höfðu afklæzt ok tekit upp yfirhafnir, þá lét Högni bera inn skapker ok mungát. Hildiríðr bónda- dóttir bar öl gestum. Björgólfr kallar til sín Högna bónda ok segir honum, at - „örendi er þat hingat, at ek vil, at dóttir þín fari heim með mér, ok mun ek nú gera til hennar lausabrullaup." En Högni sá engan annan sinn kost en láta allt svá vera sem Björgólfr vildi. Björgólfr keypti hana með eyri gulls, ok gengu þau í eina rekkju bæði. Fór Hildiríðr heim með Björgólfi í Torgar. Brynjólfr lét illa yfir þessi ráðagörð. Þau Björgólfr ok Hildiríðr áttu tvá sonu. Hét annarr Hárekr, en annarr Hrærekr. Síðan andast Björgólfr. Eg verð að játa, að ég hafði lesið þessa frásögn oft, áður en ég tók eftir hinu fíngerða háði hennar, ekki sízt í orðinu gamli, þegar segir: Þat sama haust gerði Björgólfr gamli heimanför sína -. En Björgólfr lætur ekki að sér liæða, hann 'kaupir Hildiríði og getur með henni tvo syni. „Síðan andast Björgólfr." Ur þessum einföldu orðum má, að minni hyggju, lesa mikla gamansemi: Þetta gat iþó Björgólfur gamli gert, en það mátti ekki tæpara standa! í 53. kap. er lvst allháðulega flótta Álfgeirs jarls úr orustu á Vínheiði: Aðils jarl sótti hart fram, þar til er Álfgeirr lét undan sígast, en Aðils menn sóttu þá hálfu djarfligar. Var þá ok eigi lengi, áðr en Álfgeirr flýði, ok er þat frá honum at segja, at hann reið undan suðr á heiðina ok sveit manna með honum. Reið hann, þar til er hann kom nær borg þeiri, er konungr sat. Þá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.