Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2004, Side 141

Andvari - 01.01.2004, Side 141
ANDVARI STEPHAN G. OG MÓDERNISMINN 139 gagnvart Norður-Ameríkumönnurn. íslendingar vissu hvemig íslensku skyldi tala og skrifa, og hvemig ætti að nálgast og fara með íslenska rithefð og sagnaarf. Frammi fyrir þessu viðhorfi stóð Stephan. Sýn Eliots á hefðina í greininni „Hefðin og hæfileiki einstaklingsins“ (1919) skýrir best afstöðu Stephans til íslenskrar rithefðar. Báðir voru þeirri reynslu ríkari en Emerson og Whitman að hafa lagst út frá fósturjörð sinni og leitað að haldreipi gegn rótleysi í skáldskaparhefðinni. „Hefðina" segir Eliot hafa „víðtækara gildi“ en að vera eftiröpun: Menn taka hana ekki í arf og vilji þeir ná tökum á henni kostar það mikla vinnu. í fyrsta lagi krefst hún sögulegs innsæis, er segja má að sé lífsnauðsynlegt hverjum þeim sem lialda vill áfram að vera skáld eftir 25 ára aldur. Þessi söguskynjun felur ekki aðeins í sér tilfinningu fyrir fortíðargildi hins liðna heldur og þýðingu þess fyrir nútíðina. Hún neyðir okkur til að skrifa ekki aðeins með eigin samtíð í huga, heldur í vitund þess að evrópskar bókmenntir allt frá Hómer, og innan þeirra bókmenntir okkar eigin lands, eru samtíða og mynda samtímalegt kerfi. Það er þetta innsæi - er felur í sér skynjun hins tímalausa og hins tímalega, svo og samruna þeirra - sem gerir rithöfund hefðbundinn. Samtímis gerir það hann afar meðvitaðan um stöðu sína í tímanum, samtímaleika sinn.21 Varla verður samskiptum Stephans við hefðina lýst betur en hér. Eliot og Stephan áttu það sameiginlegt að skrifa frá Útgarði sinnar hefðar og beittu sömu aðferð til að ávinna sér virðingu „handhafa“ menningarinnar. Þeir lögðu báðir hart að sér til að sanna að þeir hefðu engu síðra tak á hefðinni og engu minna sögulegt yfirlit um hana og nútímann en þeir sem gátu talist meðal handhafanna. Ekki var þó um það að ræða að Stephan drægi dám af afstöðu Eliots til hefðarinnar, því hann átti aðeins nokkur ár eftir ólifuð þegar áhrifa Eliots fór að gæta. En Eliot hafði eitt mikilvægt forskot á Stephan, sem efldi sjálfstraustið: hann var háskólamenntaður. Stephan sannaði samt svo ekki varð um villst að menntun væri ekki bund- in við skólabekk og að gamlir hættir þyrftu ekki að leggja bönd á nýsköpun og tjáningu, heldur nýttust þeir honum til að festa sér í minni stef, sögur og sögutúlkanir sem annir dagsins hefðu annars „styggt“ eða „vængbrotið“. Hann nútímavæddi sagnakveðskap: nýtti hættina til fulls í samspili við mark- visst val á kvæða- og mælskuhefðum, frásagnartækni annarra bókmennta- greina og táknrænum vísunum, til að fjölga röddum, og þar með túlkunar- möguleikum, en raddir í djúpgerð eiga í mismunandi sambandi við rödd eða raddir mælenda, þeim til stuðnings eða andmæla. Með krafti nýrra straumboða braut Stephan upp bakland hefðafestunnar og ruddi nýjar og oft óvæntar leiðir. Uppreisn gegn hefðafestu var þó ekki endanlegt takmark Stephans, heldur var hún leið til að brjóta bönd sjálfvirkr- ar - ómeðvitaðrar eða dauðrar - nýlenduhugsunar til að efla sjálfsprottna vitund í samhengi við íslenska kveðskaparhefð.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.