Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2004, Page 154

Andvari - 01.01.2004, Page 154
152 MARION LERNER ANDVARI ið því hún er skráð, ekki einungis í landslagið heldur einnig í einstaklinginn sjálfan, með sagnahefðinni og bókmenntaarfinum. Ef einstaklingurinn og landslagið ná samhljómi þá lifnar sagan við. Æskan man ævintýrin og sögumar miklu betur en hinir fullorðnu því að þeim hefur verið ýtt til hliðar í hversdagslífi þeirra síðamefndu. Þess vegna er ungt fólk miklu næmara fyrir kalli náttúrunnar. Þar með stendur æskan einnig í vissum skilningi nær fortíð þjóðarinnar en fullorðna fólkið. Þannig séð em ferðalög alls ekki merkingarlaust tómstundagaman. Þau eru tengd sögu þjóðarinnar. Upplifun á náttúmnni er því að sama skapi upplifun á sögu og þjóðemi. Ferðalög og íslenska samfélagið Þrátt fyrir allt, segir Bergur Vigfússon í Skinfaxagreininni árið 1939, hefur „verið hljótt um þennan heim“49, ævintýraheim, í lífi þjóðarinnar að undan- fömu. Að vísu hafi fegurð landsins verið dásömuð af eldri sem yngri en allt of lítið verið leitað til hennar. Greinarhöfundur reynir nú að finna skýringar á því af hverju íslendingar vom ekki duglegri að ferðast um landið og hafa því misst tengslin við það. Hann segist sjá margar orsakir. Ein er að þjóðin hafi verið allt of önnum kafin síðan hún varð sjálfstæð 1918. Eftirspum eftir íslenskum afurðum hafi verið svo mikil að vinnudagurinn varð langur og frístundir fáar. Tæknivæðingin hafi krafist mikils vinnukrafts. En í viðbót við hin daglegu störf í sveitum hafi þjóðin nú sest að í nýju umhverfi, þ.e. í sjáv- arplássum og í borginni. Höfundur tekur hér upp orðræðuna um andstæður sveitar og sjávarþorpa. Við sjóinn vantaði lengi vel vinnukraft en vinnan sem sinna þurfti í sveitunum lagðist enn þyngra á þá sem eftir urðu þar. En mesta breytingin var að mati höfundar að vinnan í sjávarplássunum var nú metin til fjár. Þetta leiðir til harðrar gagnrýni: „... þjóðin átti orðið nýjan æfintýra- heim, heim auðsins. Landið varð fjarrænna en áður og hlutur þess í skapi manna varð því minni sem þeir fjarlægðust náttúru þess meir.“50 Hér sést vel í gömlu góðu orðræðuna um spillingarkraft borgarlífsins og fjármagnsins. Fólk sem býr í borgum fjarlægist landið og náttúru þess. Með hliðsjón af umræðunni hér að ofan þýðir þetta að fólk fjarlægist ekki einungis landið og náttúruna heidur einnig söguna og þjóðararfinn. Sem sagt: Firring er orðin; firring frá landinu, frá náttúrunni, frá sögunni, frá rótum þjóðarinnar. Niður- staðan er þessi: „Ut úr hinum glæsilega heimi gróðans, sem menn að minnsta kosti álitu að vera, kom hún [þjóðin] í mörgu tilliti fátækari en áður, og ekki hvað sízt, að hún hafði fjarlægzt þá náttúru lands síns, sem fóstrað hafði hana og sett á hana sinn svip.“51 Athyglisvert er nú að höfundur staðnæmist ekki við þessa gagnrýni eins og vænta mætti heldur segir hann að þessi kafli sé yfirstaðinn og þjóðin komin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.