Andvari - 01.01.1929, Qupperneq 39
Andvari
Þjóðbandalagið og ísland
35
yfir, að hún mundi gera nauðsynlegar ráðsfafanir iil
þess, að stjórnlög landsins yrðu samræmd skyldum þeim,
sem fylgdu því að vera meðlimur bandalagsins, en þessi
yfirlýsing laut að 20. gr. 2. mgr. sáttmálans, sem mælir
svo fyrir, að ef nokkur þjóð hefir, áður en hún gekk í
bandalagið, tekið á sig skyldur, sem ekki mega fara
saman við ákvæði sáttmálans, þá skuli það skylda henn-
ar, er hún er orðin meðlimur bandalagsins, að annast
um þegar í stað að leysa sig undan þessum skyldum.
Síðan var Luxemburg veitt inntaka í bandalagið á venju-
legan hátt, án nokkurra sérstakra skilyrða á hvoruga hlið.
Eg hefi farið þessum orðum um Luxemburg, af því
að hlutleysisstaða þessa ríkis virðist að mörgu leyti svipa
til hlutleysis íslands. Áður fyrr var hlutleysi Luxemburg
með öðrum hætti að vísu; það var ábyrgzt hlutleysi. En
eftir að ábyrgðarríkin höfðu afmáð ábyrgðarskyldu sína,
varð ekki annað eftir en óvopnað, óvarið, tryggingar-
laust, en yfirlýst hlutleysi, á borð við hlutleysi íslands,
sem ekkert veldi hefir berlega viðurkennt enn, nema ef
til vill Danmörk. ísland hefir að eins sjálft lýst og látið
lýsa þeim vilja sínum, að það væri ævarandi hlutlaust.
Ef ísland óskaði inngöngu í þjóðbandalagið, hlyti hluf-
leysisstaða þess að koma til sérstakrar athugunar. Nú
munu engar líkur til þess, að það gæti fengið hlutleysis-
stöðu innan bandalagsins eins og Sviss; til þess skortir
það öll skilyrði og allan mátt til þess að verja hlutleysi
sitt, eins og Sviss. Aftur á móti bendir allt til þess, að
um hlutleysi þess færi á sama hátt og hlutleysi Luxem-
burg, sem virðist verða að skilja á þá leið, að hlutleysi
de jure verði að þoka, þar sem það samrýmist ekki
sáttmála bandalagsins.
Afleiðingin er sú fyrst og fremst, að samkv. 16. gr.
1. mgr. getur viðskipta- og fjármálahlutleysi ekki átt sér