Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1929, Page 99

Andvari - 01.01.1929, Page 99
Andvari Fiskirannsóknir 95 sem veiðin safnast í að lokum: Annar er tir voðfeldu, grönnu, einföldu baðmullargarni, með svo víðum mösk- um, að c 20 cm (tvæ-þrevetur) skarkoli og 30—40 cm (tvæ-þrevetur) þyrsklingur og ýsa getur smogið þá, en möskvar botnvörpupokans eru bæði þrengri (ca 30 mm) og riðnir úr tvöföldu, mjög gildu hampgarni, og svo lok- aðir, ef á þeim stríkkar, að fá ársgömul seiði (10—15 cm) geta smogið og tæplega smáseiði á fyrsta ári, eða sandsíli, hvað þá það sem stærra eða gildara er. Að vísu er koladragnótin ekki alveg meinlaus í þessu tilliti, því að þótt smæsti fiskurinn geti smogið hana, þá getur hún tekið mikið af ýmsum ungfiski (t. d. 20—25 cm skarkola), sem enginn slægur er í og því ekki hirð- andi, en þar hefir hin aftur þann kost fram yfir botn- vörpuna, að hún drepur smælkið miklu síður, svo að það má sleppa því aftur, einkum kolanum, enda í er Dan- mörku og víðar bannað að flytja hann á land til sölu. Sams konar sölubann gætum vér líka sett og jafnvei fyrirskipað stærri möskva, ef ástæða þætti til, eða bann- að að brúka nótina þar sem sérstaklega væri mikið af uppfæðing. Með því sem sagt hefir verið hér að ofan, hefi eg viljað sýna fram á, að koladragnótin geti alls ekki talizt eins skaðlegt veiðarfæri, þegar um áhrif hennar á botn- og fiskaungviði er að ræða, og haldið hefir verið fram af þeim, sem vilja fá hana bannaða. Það hefir jafnvel verið sagt, að hún flæmdi burtu fisk, en það geta varla verið mikil brögð að því, og víst er það, að á Vest- fjörðum þótti bera á því hér fyrr meir, þegar Danir voru með nót þessa þar á fjörðunum, að fiskur safn- aðist á hina sömu bletti á haustin og þeir höfðu fiskað á að sumrinu til. Ekki er gott að segja, hvernig á þessu hefir staðið, en eg læt mér detta í hug, að það hafi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.