Andvari - 01.01.1882, Blaðsíða 18
14
Um
stund; rennur þá nokkuð af söltunum sundur í vatninu
og er það síðan síað geguum sáld í botninum á kass-
anum og því sogað með dælu upp í næsta kassann
• en hreint vatn látið aptur í hinn. þegar lögurinn hefir
staðið um stund í öðrum kassauum og loyst nokkuð af
söltunum í öskunni þar, er hann látinn renna á sama
hátt í þriðja kassann, en leginum úr fyrsta kassanum
hleypt í annan kassann; svona gengur koll af kolli,
þangað til sami lögurinn er búinn að koma við í öllum
kössunum, og er síðan látinn renna úr tuttugasta kass-
anum og í vatnshelda vylpu. þ>á hefir verið hellt tuttugu-
sinnum hreinu vatni á fyrsta kassann, og er þá búið
að ná úr öskunni í honum öllu sem náð verður. Úr-
gangnum er þá mokað burt og síðan látin í hann þur
aska af nýju. Nú er hellt hreinu vatni á annan kass-
ann einu sinni, það fer gegnum alla hina kassana og
síðast inn í þann kassann sem áður var fyrstur. þ>á er
annar kassinn tæmdur og látiu í hann ný aska, en
hreinu vatni hellt einu sinni í þriðja kassann og því
veitt þaðan gegnum hina kassana og síðast inn í annan
kassann, og svo koll af kolli; og þegar lögurinu er búinn
að koma við í öllum kössunum er honum hleypt niður
í vylpuna. pessi aðferð er nú orðin úrelt, og fundin
önnur einfaldari, þar sem ekki þarf svo marga kassa.
Lögurinn er látinn standa nokkra stund í vylpunni,
svo að hann setjist. Síðan er hleypt úr henni yfir í 6
pönnur með skálarlögun; pönnubotninn er múraður inn
í ofninn svo eldurinn kemst ekki nema að hliðunum; er
það gjört til þess að söltin skuli ekki brenna við botninn
og sprengja pönnuna. Úr pönnunum liggja rennur niður
í ker þau, er höfð eru til þess að krystalla söltin í.
pegar svo mikið vatn er gufað upp úr pönnunum, að
farin er að koma saltskán ofan á löginn, er honum hleypt
eptir rennunum niður í kerin. þ>ar kólnar hann og sezt
brennisteinssúrt kalí á botninn. pað er þd óhreint mjög,