Andvari - 01.01.1882, Page 95
jarðskjálfta.
91
1693. Heklugos 13. febrúarmán. J>á fundust harðir
landskjálftakippir á landi og sjó. Nokkrir bæir
eyddust af öskufalli og jarðskjálftum *)•
1706. Miklir landskjálftar 1. dag aprílmánaðar, en þó
einkuin 20. s. m., hrundu þá hið seinna sinn 24
lögbýli mest um Ölfus og utarlega í Flóa og
margar hjáleigur; molbrotnuðu viðir í húsum og
húsin veltust um, svo undirstöður veggjanna urðu
efstar, kofar og veik hús stóðu eptir sumstaðar
þar sem hin sterkari féllu, matföng og búshlutir
spilltust, kýr og kvikfénaður drápust víða, en ekki
sakaði menn, nema eina konu. jpessar hræringar
stóðu lengi fram eptir vorinu og voru því minni
sem vestar dró, og það var rétt svo að þær
fundust undir Jökli2).
1721. KötJugos sem byrjaði 11. mai, kl. 9. e. m. Um
morguninn sama dag kl. 9 á undan gosinu kom
svo mikill jarðskjálfti á Höfðabrekku og víða í
Mýrdalnum, að menn þorðu ekki að vera inni í
húsum. þ>essi jarðskjálfti fannst austur í Lóni
og í öllum sveitum þar í milli. Einnig fannst
hann út til llangárvalla3).
1724. Byrjuðu mikil gos við Mývatn og héldust þangað
til 1730. 17. mai 1724 byrjuðu gosin með ógur-
') Th. Thorlacius: Dissertatio de montis Heclæ ultimo incendio.
Hafniæ 1694.
>) Esp. Árb. VIII. bls. 98. Hannes Finnsson: Um mannfækkun
af hallærum bls. 105—106. Magnus Stepbensen: Island i
det 18. Aarhundrede bls. 30. Eggert Ólafsson segir (Eeise
i Island II. bls. 913) að menn og skepnur hafihérogbvar
dáið undir búsurn.
a) þórður þorleifsson og Erlendur Gunnarsson: Um hlaupið
úr Myrdalsjökli 1721 í handritasafni bókmf. í Kmh. nr. 37.
8”- bls. 304-308.