Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Blaðsíða 83
HAFDÍS INGVARSDÓTTIR
Taflal
Kennsluréttindanám
við félagsvísindadeild Háskóla Islands'
Kennsluréttindanámið stendur yfir íníu mánuði, eitt háskólaár,
og gefur þrjátíu einingar
Námsþættir Einingafjöldi
Námsálarfræði 3
Þroskasálfræði 3
Félagsfræði menntunar 3
Námskrárfræði/kennslufræði 6
Kennslufræði greinar" 5
Verklegt nám 10
Verklega námið
Verklega námið fer fram samhliða hinu fræðilega námi, stendur allan
veturinn og vegur tíu einingar.
1. Fundir með umsjónarkennara (greinabundið)
2. Skólaheimsóknir (20 stundir)
3. Dæmikennsla (16 tímar í sex manna hópum)
4. Kennslutækni (notkun myndvarpa, tölvur o.s.frv.)
5. Raddbeiting, viðtalstækni, hópefli
6. Heimsóknir í stofnanir sem tengjast eða þjóna unglingum og skólastarfi
7. Æfingakennsla tvær vikur í senn á haustönn á unglingastigi og á vorönn í fram-
haldsskóla. Kennaraefni tengjast æfingaskóla þegar í upphafi misseris til að geta
verið búin að kynna sér námsefnið og vinnutilhögun kennara, kynnast væntan-
legum nemendum sínum og andrúmslofti skólans.
f töflunni kemur fram hvernig námið var skipulagt þegar gögnum var safnað. Því hefur nú verið
töluvert breytt.
Hver nemandi tekur eitt af fjórum sviðum: Kennslufræði íslensku, kennslufræði erlendra mála,
kennslufræði félagsgreina eða kennslufræði raungreina.
dagbækur, sem nemar héldu meðan á æfingakennslu stóð, notaðar til margprófun-
ar.
Fyrsta viðtalið var tekið í lok ágúst, áður en námið hófst, til að afla upplýsinga
um hugmyndir nemanna áður en námið væri hugsanlega farið að hafa nokkur
áhrif, en það síðasta í lok maí um leið og prófum lauk, en áður en einkunnir lágu
81