Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Blaðsíða 32

Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Blaðsíða 32
„ A F Þ V í LÆ R A BÖRNIN MÁLIÐ" tæknina „að tengja", en hún gerir barninu kleift að lesa ný og óþekkt orð. Markmið kennslunnar í báðum skólunum var að börnin lærðu „að tengja" í lok skólaársins og gætu örlítið lesið sjálf. Margir fræðimenn staðfesta (t.d. Clay 1991b, Hagtvet 1988) að farsæl leið til að læra lestrartæknina sé fjölbreytt vinnubrögð með mál og texta strax í upphafi skólagöngu þar sem barnið er virkt og skapandi. Einnig þarf barninu að vera ljós tilgangurinn með lestrarnáminu og að það sé í samhengi við þarfir þess. Ekki var unnt að meta fjölbreyttar leiðir í lestrarkennslunni þar sem ferli hennar var eins frá fyrsta bókstaf sem var kenndur til hins síðasta í stafrófinu. Það er mikilvægt fyrir kennara að ígrunda allar áherslur sem valdar eru í lestrarnámi því að þær þurfa að taka mið af fjölbreyttum leiðum í viðleitninni til þess að hjálpa barni að læra að lesa. Þessu til áréttingar má benda á það sem tekið er fram í Aðal- námskrá grunnskóla um að lestrarnám sé í beinum tengslum við málþroska nemenda og eigi að taka mið af áhuga þeirra, getu og þroska við upphaf skólagöngu og að mismunandi aðferðir eigi að koma til greina við lestrarkennsluna (1989:68). Þróun talmáls, lestrar og ritunar fer saman á órjúfanlegan hátt eins og margir fræðimenn benda á (Snow 1983, Snow og Nino 1986 og Clay 1986). Barn sem les ræður því við alla þessa þætti. Ritun krefst þess að barn noti alla þekkingu sína á hlutverki móðurmálsins, kunni form þess, hljóð og merkingu. Barn glímir við flókna færni þegar það spreytir sig á ritun. Rannsóknir sýna að ritun virðist nær- tækari og haldbetri leið fyrir barnið í byrjun að fikra sig eftir en lestur. Athyglisvert er því að í báðum skólum var reynslan sú að þrátt fyrir hvatningu til ritunar og sögugerðarbók reyndu fá börn að skrifa texta frá eigin brjósti fyrsta skólaárið. Hvers vegna svo er væri verðugt að athuga því að ætla má að skýringin felist með einhverjum hætti í ferli lestrarkennslunnar. Þessi reynsla kennaranna um ritun barna er ekki síður umhugsunarverð með tilliti til þess áhuga sem mörg börn sýna í leikskóla á því að „skrifa" sjálf. Hver og einn lærir að lesa og skrifa á sínum forsendum. Lestur og ritun byggir á táknum og þurfa flestir kennslu til að geta tileinkað sér þau. Þarft er að minnast að börn eru misjafnlega tilbúin til þess þegar þau byrja í grunnskóla. Rétt eins og í málþróun þurfa margir þættir máls að koma saman og þróast sem órofa heild í lestrarnáminu. Eftirtektarverð er sú einhliða áhersla sem lögð var á það í skólunum að börn lærðu að þekkja bókstafina og hljóð þeirra og lærðu tæknina við að tengja þau fyrsta skólaárið. í Aðalnámskrá grunnskóla kemur fram að miða á við að góðri lestrarhæfni sé náð við átta til níu ára aldur (1989:68). Þetta bendir til þess að kenn- arar þyrftu að skilgreina hvað felst í góðri lestrarhæfni og velja aðferðir í móður- málskennslu fyrstu skólaárin í samræmi við það. Starfsfólk grunnskólans beindi skilningi á uppeldishlutverki sínu fyrst og fremst að skólanum og markmiðum hans í starfi og kennslu. Talið var að fjöldi barna í bekk hefði afgerandi áhrif í þessu sambandi. Kennurum var ljóst að skipu- lagið í kennslu hafði takmarkanir þegar um tuttugu börn voru nær alltaf í einum hóp með kennara sínum. Þeir töldu einnig að ekki væri hægt að horfa fram hjá þeim mikla þroskamun sem var staðreynd í hvorum bekk og töldu að skólinn væri ekki nægjanlega sveigjanlegur til að mæta miklum einstaklingsmun í námi. Komu 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.