Uppeldi og menntun - 01.01.1997, Blaðsíða 99
BORKUR HANSEN
ÓLAFUR H. JÓHANNSSON
STEINUNN HELGA LÁRUSDÓTTIR
AHERSLUR I STARFI SKOLASTJORA
í ÍSLENSKUM GRUNNSKÓLUM
í grein pessari er greint frá rannsókn á störfum skólastjóra í íslenskum grunnskólum.
Markmið hennar var að afla upplýsinga um í hvaða meginviðfangsefni skólastjórar verja
tíma sínum, í hvaða viðfangsefni peir telja æskilegt að verja mestum tíma og hvaða við-
fangsefni valda peim mestum erfiðleikum og mestri ánægju í starfi. Flokkun á viðfangs-
efnum var sótt til bandarískrar könnunar um hliðstætt efni. Niðurstöður leiddu m.a. í Ijós
að verulegur munur er á raunverulegri röðun viðfangsefna og peirri röðun sem skólastjórar
telja æskilega. Fram kom að viðfangsefni tengd stjórnun og umsýslu taka of mikinn tíma frá
viðfangsefnum sem varða faglegt leiðtogahlutverk skólastjóra.
Skólastjórar eru þeir aðilar í hverjum skóla sem hafa mesta möguleika á að hafa
áhrif á starfsemi og starfshætti sinna stofnana, það staðfesta lög og reglugerðir. Þá
benda ýmsar rannsóknir til þess að árangur í skólastarfi ráðist að miklu leyti af
frumkvæði og forystu skólastjóra (sjá t.d. Purkey og Smith 1983, Mortimore o.fl.
1988, Reid, Hopkins og Holly 1988, Reynolds 1992). Þetta fer saman við það sjónar-
mið að því aðeins nái skólastjórar árangri í starfi að þeir kunni að nýta sér þá kosti
sem staðan býður upp á, skilji sérstöðu skóla sem stofnana og hafi lag á að nýta sér
hana (sjá t.d. Sergiovanni 1987). A stjórnendum hvílir því fyrst og fremst sú ábyrgð
að velja það sem best hentar aðstæðum þess skólasamfélags sem þeir eru í forsvari
fyrir. Því er mikilvægt að skólastjórar hafi ákveðnar skoðanir á því hvernig þeir
vilja móta þá skóla sem þeir starfa við og vinni markvisst að því að koma nýjum
hugmyndum í framkvæmd. Þau verkefni sem skólastjórar verja vinnutíma sínum í
varpa ljósi á áherslur þeirra í stjórnun.
Hér á eftir verður sagt frá rannsókn á störfum skólastjóra í íslenskum grunn-
skólum. Höfuðmarkmið rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um það í hvaða
meginviðfangsefni skólastjórarnir verja mestum tíma, í hvaða viðfangsefni þeir telja
æskilegt að verja mestum tíma, hvaða viðfangsefni veita þeim mesta ánægju í starfi,
og hvaða viðfangsefni valda þeim mestum erfiðleikum í starfi. Notuð var sama
flokkun á viðfangsefnum og gert hafði verið í bandarískri könnun (McCleary og
Thomson 1979).
ÁHERSLUR í STARFI SKÓLASTJÓRA
Fátt hefur verið vitað með vissu um það hvernig skólastjórar í íslenskum grunn-
skólum verja tíma sínum. Til að afla upplýsinga um það var hannaður spurninga-
Uppeldi og menntun - Tímarit Kennaraháskóla íslands 6. árg. 1997
97