Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 70
144
Tímarit lögfræiinga
lega um synjun aðilja um verjanda, enda má búast við
ómerkingu dóms og málsmeðferðar í æðra dómi, ef ástæða
hefur þótt til að skipa hann, en það hefur eigi verið gert.
Ef sökunáutur óskar sér ekki skipaöan verjanda, þá skal
venjulega ekki gera það, nema mál sé bæði sótt og varið.
Sökunautur lýsir því ef til vill, að hann ætli að verja sig
sjálfur og óski því ekki eftir verjanda, en allt um það
getur dómari skipað honum verjanda, ef hann telur ástæðu
til þess að ætla sökunaut ófæran til varnar. Þó að dómari
hafi lögum samkvæmt synjað aðilja um skipun verjanda,
þá er aðilja að sjálfsögðu rétt að ráða sér verjanda á sinn
kostnað. En þá yrði hann að greiða verjanda sínum, enda
þótt hann yrði dæmdur sýkn, og ríkissjóður yrði því ann-
ars að greiða varnarlaun. En með sjálfvalinn verjanda,
sem dómari hefur samþykkt, verður dómari að fara, ann-
ars sem skipaðan verjanda, svo sem um lán dómsskjala
til undirbúnings varnar, frest til hennar o. s. frv. 1.
málsgr. 121. gr. Munur á stöðu skipaðs og sjálfvalins
verjanda verður þó samkvæmt 1. málsgr. 127. gr., ef
sjálfvalinn verjandi sækir ekki dómþing (sjá bls. 142).
Þegar með mál er farið samkvæmt 113. gr., þá verður
ekki talsmál um skipun verjanda, því að ósk um það kemur
engin fram, og ekki verður ástæða til skipunar verjanda
ex officio.
Reynslan mun verða sú, að verjandi verður venjulega
skipaður, ef sökunautur óskar þess. Þau verða því ekki
mörg málin, þar sem eigi verði skipaður verjandi, ef
sökunautur óskar þess. Fjöldi brota getur nú varðað 10000
kr. sekt eða tveggja mánaða refsivist. Og naumast verða
þau mál mjög mörg, þar sem afdráttarlaus játning er
fengin og enginn vafi um staðreyndir, sem máli skipta,
eða lagaatriði. Munu dómarar venjulega fylgja aðalregl-
unni, að skipa verjanda, ef þess er óskað og einhver vafi
kann að vera. 1 málum um brot á samþykktum og reglu-
gerðum, sum áfengislagabrot og ýmis önnur smábrot,
verður verjandi ekki skipaður.
1 fyrsta þinghaldi skal ákveða það, hvort vörn skuli