Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 19
Meðferð opinberra mála
93
ekki máli um saksóknarrétt dómara, þótt sökunautur hafi
gefið skýrslu fyrir lögreglumanni einungis. Ef sökunautur
hefur komið fyrir rannsóknardómara og gefið þar skýrslu,
þá verður ekki farið eftir 113. gr. Eftir 113. gr. má að-
eins dæma mann, sem aldrei hefur í því máli gefið skýrslu
fyrir dómi. Maður er t. d. sakaður um brot á lögreglu-
samþykkt, en kemur ekki fyrir rannsóknardómara og
sinnir engu kvaðningu dómara. Þegar rannsókn málsins
er talið lokið, þá á dómari að höfða mál á hendur söku-
naut, sbr. orðið „höfðar“ í upphafi 113. gr. Þá skal dómari
semja kvaðningu til aðilja til þinghalds á tilteknum stað
og tíma. Kvaðning skal hafa þau aðalatriði öll, sem í á-
kæruskjali eiga að vera samkvæmt 115. gr. 1.—3. tölul.,
að viðbættu, að fjarvist hans verði metin til jafns við
viðurkenningu hans, að dómur gangi um málið og að hann
megi ekki vænta frekari viðvörunar. Kvaðningu skal birta
fyrir sökunaut sjálfiim, með því að nauðsynlegt er, að hún
hafi sannanlega komið honum til vitundar. Þess vegna er
ekki nægilegt, þótt hún sé birt fyrir einhverjum öðrum,
sem rétt er að birta stefnu í einkamáli. Eftirrit af kvaðn-
ingu skal jafnan fá sökunaut í hendur, 116. gr. Ef ó-
kunnur er dvalarstaður sökunautar eða jafnvel óvíst um
hann sjálfan, þá verður eigi farið eftir 113. gr.
Ef sökunautur kemur fyrir dóm samkvæmt kvaðningu,
þá verður farið með mál hans samkvæmt 112., 114. eða
115. gr., eftir því sem á stendur. En ef sökunautur sinnir
ekki kvaðningunni, þá má leggja dóm á málið samkvæmt
113. gr., en til þess eru þrjú skilyrði sett:
Fyrst, aö ókunnugt sé um það, að nauðsynjar banni
aðilja komu fyrir dóm.
Annað, aS ætla megi, að brot hans varði eigi yfir 3000
hr. sekt eða eignaupptöku.
Um sektir er það hér og annars staðar í lögunum, þar
sem sektahæð er til tekin, athugandi, að hámark og lág-
mark sektar, sem ákveðin hefur verið í lögum án til-
lits til verðlags 8. marz 1948, skal breytast í samræmi
við kaupgjaldsvísitölu á hverjuin tíma, lög nr. 14, 8. marz
7