Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 9
Meðferö opinberra mála
83
Svo mikið alkóhólmagn var í blóði tiltekins manns, örorka
hans er metin svo mörg pro cento, áverkinn var þessi,
með nánari lýsingu, efnagreining sýndi þessi efni í til-
teknum vökva o. s. frv. Oft getur mat og skoðun dóm-
kvaddra kunnáttumanna sjálfsagt nægt, ogmun það senni-
lega verða haft, þegar einungis er um eitt einstakt atriði
að tefla, t. d. um það, hvort einn einstakur smíðisgripur
sé rétt gerður, hvort letur á blaði líkist rithönd tiltekins
manns, o. s. frv. Einatt er það svo, að kunnáttumenn
einir geta bezt sagt um það, hvað sannreyna sk^l eða þarf
í tilteknu máli, og má dómara því vera nauðsynlegt að
hafa þá með sér bæði í rannsókn og dómsgerð í máli.
I máli þar sem læknir er t. d. sakaður um fóstureyðingu
og eigi fæst játning hans um sök, kann að þurfa rann-
sókn á fjölda atriða, sem sérfræðingur í kvensjúkdóm-
um og fæðingarhjálp einn er bær að dæma. Og væri þá
sjálfsagt að kveðja hann og annan hæfan mann þegar til
dómstarfa, svo að þeir vinni opinberlega með fullri ábyrgð
með inum reglulega dómara, í stað þess, sem nú hefur
reynzt, að einhver læknir, sem hvergi er getið og ef til
vill hvergi vill láta sín getið, aðstoði dómarann, sem svo
stendur ef til vill einn uppi með ákúrur æðra dóms og
annarra um það, að rannsókn hafi verið vanrækt um þýð-
mgarmikil atriði eða jafnvel úrslitaatriði um sekt eða
sýknu sökunautar. Og má slíkt auðvitað verða í mörgum
fleiri málum.
III. Tilhögun þinghalda.
Það hlýtur að verða aðalreglan framvegis sem hingað
að dómari ákveði stað og stund til þinghalds í opin-
berum málum, hvort sem rannsókn þeirra eða dómsmeð-
íorð skal þar fara fram. Rannsóknar þarf oft að öllum
ovörum, því að ósjaldan berst fregn eða kæra um brot,
þar sem rannsókn er nauðsynleg þegar í stað eða svo
fljótt sem við verður komið. Eftir málshöfðun getur dóm-
ari venjulega ákveðið málsmeðferð nokkurn veginn eftir
hentugleikum sínum og sakflytjenda. Dómsmálaráðherra