Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 37
Meðferð opinberra, mála
111
upplýsingar kynnu að valda honum refsingu, sbr. 142. gr.
hegningarlaganna. Þegar rannsókn er svo komið, að dóm-
ara er skylt að benda aðilja á það, að hann sé grunaður
um refsivert verk, þá er aðilja óskylt að svara spurn-
ingum dómara um þaS, er þá hegSun varöar. Þá er aðili
orðinn sökunautur, og má haga sér eftir því. En dómara
ber jafnframt að benda aðilja á það, að þögn hans við
spurningum dómarans kunni að verða skýrð honum í óhag.
Þögnin skapar því líkur gegn sökunaut, sem með öðrum
ríkari gögnum kann að endast honum til sakfellis. Reynsl-
an hefur orðið sú annars staðar, að sokunautar hafa yfir-
leitt kosið að svara spurningum dómara, svo að þeir felldu
ekki á sig líkur með þögninni.
Það má sjálfsagt stundum orka tvímælis, hvort spurn-
lr>gu má telja varSa þá refsiverSa hegSun, sem sökunautur
er grunaður um. Sumar spurningar, svo sem um nafn,
aldur, atvinnu og dvalarstað aðilja, varða ekki hegðun
hans, þá er máli skiptir. Aðrar varða hana beinlínis, svo
Sem um það, hvort hann hafi framið brot eða hjálpað til
Þess, t. d. hvort hann hafi tekið við fé því, sem stolið
hefur verið, hvort hann eigi verkfæri, sem brot hefur
verið framið með, o. s. frv. Sama má víst segja um spurn-
|ngar um vistarstað hans og athafnir fyrir og eftir framn-
lngu brots, með því að svör við þeim kunna að skapa líkur
Segn honum. Um sumar spurningar má vera vafi. Þær
Seta litið sakleysislega út, án þess þó að vera óleyfilega
veiðandi, en svör við þeim kunna þó að skapa líkur. Verða
anðvitað engar almennar reglur um þetta gefnar.
3. Athygli má vekja á því, að ákvæði 3. málsgr. 40. gr.
nin það, að ekki megi hafa sökunaut til yfirheyrslu lengur
1 einu en 6 klukkustundir, og að greina skuli í þingbók,
nve nær prófun hefst og hve nær henni lýkur, gilda og hér,
4. mgr. 77. gr. Af öðrum ástæðum en þar segir getur verið
nauðsynlegt að greina, hve nær prófun hefst, því að svo
Setur staðið á, að mikils sé vert að greina það, eins og
reyndist í fóstureyðingarmáli, sem nýlega hefur verið fyrir
dómstólum.