Tímarit lögfræðinga - 01.06.1951, Blaðsíða 79
MeSferS opinberra mála
153
færa hann þangað með valdi, ef þess þarf við. Þetta helg-
ast af því, að ákærða skal venjulega spyrja um ýmis sakar-
ati'iði, ef þess er nokkur kostur, enda þótt rannsókn sakar
þyki að öllu við hlítandi. Þinghaldi verður því ef til vill
að fresta vegna forfalla ákærða, nema ekki þyki ástæða
til að prófa hann af nýju.
Áður en prófun ákærða hefst, gerir sækjandi nokkra
gi'ein fyrir sakaratriðum og ákæru og þeim sakargögnum,
sem hann styður ákæru við, 3. málsgr. 134. gr. Hann
reifar málið í aðalatriðum. Þetta er gert til þess, að á-
kærði megi betur átta sig á aðalatriðum málsins, áður en
hann er spurður af nýju. Hér mun það koma í ljós, hversu
sækjandi er starfi sínu vaxinn, hversu slingur hann er
að ná aðalatriðum málsins í sem stytztu máli. Og þegar af
þessari ástæðu er þörf á að vanda sem bezt val sækjanda
°g löggilda þá eina héraðsdómslögmenn, er bæði hafa góða
þekkingu og sýnt má vera um að taka saman kjarnaatriði
hvers máls. Verjanda hlýtur og að vera rétt og skylt að
Sera athugasemdir við sakarlýsingu sækjanda, ef hon-
Um þykir þess þörf, eða bæta við atriðum, sem hann telur
eiga að spyrja ákærða um.
Þá er sakflytjendur hafa þannig reifað mál, skal
sPyi‘ja ákærða, eftir því sem efni standa til. Ef hann hefur
Jatað brot sitt og gefið skýrslur að öðru leyti, þá skal
hann spurður, hvort hann vilji standa við játningu sína
eða skýrslur. Benda skal honum á ósamræmi, er verða
kann milli þess, sem hann hefur áður sagt, og þess, er hann
Segir nú, ef því er að skipta, 134. gr. Ef nú ekkert kemur
fram, er efni veitir til framhaldsrannósknar, þá kemur
n*st til flutnings sóknar og varnar.
Framhaldsrannsókn um atriði þau, sem sakflytjendur
afa ákveðið samkvæmt 133. gr. eða framhaldsrannsókn,
Sem skýrslur ákærða hafa veitt efni til, fer auðvitað fram
eftir að ákærði hefur verið spurður, enda telji dómur ekki
ótilokað, að hún kunni að bera árangur, sbr. 3. málsgr.
134. gr. Ef rannsókn hefur verið ráðin samkvæmt 133.
þá fer hún fram þegar er prófun ákærða er lokið, en